Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í morgun með 75 tonn, 55 tonn þorskur og 20 tonn ýsa.
Skipið fór út að löndun lokinni.
Jólakveðja
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í morgun með 85 tonn, þar af voru 50 tonn þorskur og 35 tonn karfi sem fer ferskur á Þýskalandsmarkað.
Skipið fer síðan aftur út 26. desember um miðnætti.
Sandfell og Hafrafell með góða veiði
Sandfell og Hafrafell lönduðu 24 tonnum í dag. Góð veiði hefur verið þegar viðrar. Bátarnir lönduðu samtals 20 tonnum á laugardaginn og 40 tonnum á mánudaginn. Í desember hefur Sandfellið fengið 145 tonn og Hafrafell 145 tonn.
Hoffell SU
Hoffell kom í land í morgun með tæp 1.300 tonn af kolmunna af miðunum sunnan við Færeyjar. 350 mílur voru af miðunum á Fáskrúðsfjörð.
Skipið stoppaði 4 sólarhringa á miðunum.
Nú tekur við jólafrí fram yfir áramót.
Hoffell SU
Hoffell er á landleið með 1550 tonn af kolmunna af miðunum sunnar við Færeyjar, en það tók aðeins 4 daga að ná aflanum. Skipið verður í landi seinnipartinn á dag Farið verður aftur út að lokinni löndun og freistað þess að ná öðrum túr í næstu viku.
Gæðastjóri Loðnuvinnslunnar
Maður er nefndur Stefán Hrafnkelsson og er hann nýráðinn gæðastjóri hjá Loðnuvinnslunni. Stefán er fæddur 1968, sveitadrengur að upplagi, alinn upp í Fljótsdalnum þar sem foreldrar hans stunduðu búskap fram til ársins 1986 þegar þau fluttu til Reyðarfjarðar.
Hugur Stefáns leitaði til náms og dró sú leit hann til Danmerkur þar sem hann útskrifaðist sem mjólkurfræðingur og framleiðslutæknifræðingur á matvælasviði. “Ég útskrifaðist árið 2007 og hef ekki komið inní mjólkurstöð síðan” sagði Stefán og bætti því við að þau hjónin hefðu ákveðið eftir langa fjarveru að flytja aftur “heim” þegar konu hans, Önnu Berg Samúelsdóttur, bauðst starf hjá Fjarðabyggð. “Ég var mjög sáttur við að koma aftur austur, ég er óttalegur sveitamaður inn við beinið” bætti Stefán við og sagðist kunna betur við sig í fámenninu. Er austur kom fór Stefán til starfa í Álverinu og hefur verið þar sáttur starfsmaður þar til hann ákvað að sækja um starf gæðastjóra hjá LVF. Í því starfi getur hann nýtt menntun sína og ekki er að heyra betur en hann sé spenntur fyrir framtíðinni í nýja starfinu.
Er Stefán var inntur eftir því hvað fælist í starfi gæðastjóra svaraði hann því til að það væri “hafsjór af öllu mögulegu, eins og eftirlit með góðum starfsháttum, rakningu á vörum frá framleiðslu til neytanda, skjalavarsla, sýnataka og ótalmargt fleira”.
En lífið er ekki bara vinna, mannfólk þarf líka að hafa tíma og tækifæri til þess að stunda áhugmál sín og rækta fjölskyldu og Stefán gerir hvoru tveggja. Hann, ásamt konu sinni, stundar hestamennsku af kappi. “Við vorum að byggja okkur hesthús, það er nánast fullbúið og vel fer um hestana okkar þar” sagði hann og svo er hann afi. Í lífi Stefáns eru tveir uppkomnir synir og ein lítil afastúlka sem á greinilega stórt pláss í hjarta afa því rödd hans fékk á sig bjartari blæ þegar hann talaði um stúlkuna.
Stefán hefur verið í starfi gæðastjóra í rúman mánuð og er ánægður. “Það var tekið gríðarlega vel á móti mér og mér mætti ekkert nema góðvild. Þetta leggst mjög vel í mig” sagði geðþekki gæðastjórinn Stefán Hrafkelsson að lokum.
Við óskum honum velfarnaðar og bjóðum hann hjartanlega velkominn til starfa.
BÓA
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn dag með 75 tonn. Þar af voru 60 tonn þorskur, 7 tonn ýsa og annar afli.
Brottför er kl. 13 á morgun.
Hoffell SU
Hoffell kom í land í morgun með um 450 tonn af síld og öðru afla.
Í gærkvöldi var komin bræla fyrir vestan land og verður í nokkra daga.
Aflinn fer í söltun. Þegar búið er að landa verður haldið á kolmunnaveiðar austan við Færeyjar.
Ljósafell SU
Ljósafell kom í land í morgun með 80 tonn, þar af 70 tonn þorskur, 6 tonn ýsa og annar afli.
Skipið fer út aftur þegar veðrið gengur niður.
Aflabrögð í nóvember
Það sem liðið er af nóvembermánuði hefur fiskast vel hjá bátunum Hafrafelli og Sandfelli, þrátt fyrir rysjótt veður. Bátarnir er búnir að veiða samtals um 237 tonn. Hafrafell með 122 tonn og Sandfell með 115 tonn.
Ljósafell
Ljósafell kom inn í dag með 55 tonn. Aflinn er að mestu þorskur. Ljósafell fer út kl. 13.00 á miðvikudaginn.