Afurðir

Samþætt starfsemi við veiðar og vinnslu tryggir að Loðnuvinnslan geti framleitt afurðir í samræmi við kröfur markaðarins. Auk þess gefur fjölbreytt starfsemi félagsins kost á að bjóða breitt vöruval. Loðnuvinnslan leggur metnað sinn í mikil gæði og heilnæmar og hollar afurðir framleiddar úr fiski sem aflað er úr hreinu hafinu umhverfis Íslands.

Gæðakerfi tryggja að mögulegt er að rekja uppruna afurðanna frá veiðum til markaðar eða frá markaði til veiða.

Loðna

Mallotus villosus
Vöruframboð okkar: Heilfryst stærðarflokkuð, hrogn, mjöl og lýsi.

Makríll

Scomber scombrus

Vöruframboð okkar: Flök, heilfrystur og H/G frystur. Mjöl og lýsi.

Gullkarfi

Sebastes marinus
Vöruframboð okkar: Seldur að mestu heill og ferskur til Þýskalands.

Ýsa

Melanogrammus aeglefinus

Vöruframboð okkar: Ferskur hnakki og bitar, IQF flök og bitar.

Ufsi

Pollachius virens

Vöruframboð okkar: Ferskur hnakki, bitar og sporður, IQF flök og millilagt 3×9 kg.

Þorskur

Gadus morhua

Vöruframboð okkar: Ferskur hnakki, bitar og sporður, IQF flök og bitar.

Kolmunni

Micromesistius poutassou

Vöruframboð okkar: Mjöl og lýsi.

Síld

Clupea harengus

Vöruframboð okkar: Heilfryst, flök og flapsar, söltuð flök, bitar og samflök.

Djúpkarfi

Sebastes mentella

Vöruframboð okkar: Seldur að mestu heill ferskur til Þýskalands.