Ljósafell SU

Ljósafell kom inn í kvöld með 95 tonn.  Þar af er 45 tonn þorskur, 30 tonn karfi, 10 tonn ýsa og 10 tonn ufsi.

Skipið fer út á fimmtudagsmorgun.

Góður afli Sandfells SU í ágúst

Ágústmánuður var var gjöfull hjá Sandfelli, og endaði skipið með mestan landaðan afla línubáta, með rétt tæp 200 tonn. Síðustu 9 daga hefur báturinn svo verið í slipp á Akureyri og er áætlað að hann fari aftur á stað um n.k. helgi.

Hoffell SU

Hoffell kom að landi í gær, sunnudag með um 1050 tonn af makríl.  Túrinn gekk mjög vel og þeir fengu makrílinn á aðeins 19 tímum.  Skipið hefur þá veitt tæp 8.000 tonn á verðtíðinni.

Ljósafell


Ljósafell kom inn í dag í millilöndun með 40 tonn.  Þorskur 25 tonn, ýsa 12 og annar afli.
Ljósafell fer út að lokinni löndun.

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn í dag með rúm 80 tonn, þar af var 30 tonn þorskur, 10 tonn ýsa, 10 tonn ufsi og 30 tonn karfi.
Þessi túr var síðasti túr kvótaársins.  Skipið fer aftur út á morgun.

Hoffell

Hoffell er nú að landa rúmum 1000 tonnum af makríl. Túrinn gekk vel, því að skipið lagði af stað á miðvikudagskvöldi og var komið til hafnar aftur á sunnudagskvöldi eftir að hafa fengið skammtinn af makríl í „Smugunni“, Þangað er um 35 tíma stím aðra leið. Skipið heldur aftur til sömu veiða að löndun lokinni.

Ljósafell

Ljósafell kom inn í kærkveldi með um 100 tonn af blönduðum afla. Mest er af ufsa, ýsu og karfa, en aðeins 3 tonn af þorski. Aflinn fer mest á fiskmarkað og til útflutnings í gámum sökum þess að allt er á kafi í makrílvinnslu hjá Loðnuvinnslunni hf. Ljósafelli heldur aftur til veiða á miðnætti í kvöld.

Makrílveiðar

Hoffell er á landleið með 1000 tonn af makríl. Vel hefur gengið hjá Hoffellinu undanfarið, og þegar þessi afli verður kominn í land hefur Hoffellið landað tæpum 6000 tonnum af makríl.

Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffelli sagði að það þyrfti að sækja nokkuð langt til að finna makríl en það hefði gengið vel að þessu sinni og þessi 1000 tonn hefðu náðst á aðeins 38 klukkustundum.

Á síðasta ári hættu veiðar þann 10.september en árin þar á undan hélt veiðin  út september. Sigurður skipstjóri sagði að fiskurinn væri allur austar núna. “Hann kemur úr norsku lögsögunni og við vorum að ná honum alveg við línuna” sagði skipstjórinn. Sigurði líst ágætlega á framhaldið þó að hann geri sér fulla grein fyrir því að það styttist í að fiskurinn fari á hrygningastöðvarnar en það gerir hann þegar líður á haustið og ef eitthvað má byggja á fyrri reynslu virðist það vera gerast fyrr heldur en fyrir nokkrum árum.

Veðrið var með ágætum í þessum túr, þó kom kaldaskítur þegar Hoffellsmenn voru að draga inn síðasta holið en það lagaðist í nótt er leið.

Hoffell verður í heimahöfn um kl. 19.00 í kvöld, sunnudaginn 23.ágúst. Löndun hefst snemma í fyrramálið og áætlað er að halda aftur til veiða á miðvikudaginn.

BÓA

Ljósafell

Ljósafell kom til löndunar kl 06:00 í morgunn með um 70 tonn. Aflinn var 30 tonn af þorski, en einnig ufsi, ýsa og karfi. Brottför í næstu veiðiferð er kl. 20:00 í kvöld.

Hoffell

Hoffell kom til löndunar í gær með um 1000 tonn. Uppistaðan er makríll, um 850 tonn en einnig norsk-íslensk síld 150 tonn.

Ljósafell

Ljósafell kom til löndunar í gær með um 60 tonn af blönduðum afla. Skipið heldur aftur á veiðar í dag, þriðjudag, kl 13:00.

Ljósafell

Ljósafell kom til löndunar í morgunn með um 75 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, 35 tonn, auk ýsu, karfa ofl.