Ljósafell
Ljósafell kom til löndunar í gær með um 60 tonn af blönduðum afla. Skipið heldur aftur á veiðar í dag, þriðjudag, kl 13:00.
Ljósafell
Ljósafell kom til löndunar í morgunn með um 75 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, 35 tonn, auk ýsu, karfa ofl.
Hoffell
Hoffell fór til veiða í gærkvöld eftir að hafa landað um 1000 tonnum af makríl.
Línubátar
Línubátarnir sem leggja upp hjá LVF voru með sæmilegan afla í Júlí. Sandfell var með 200 tonn og endaði í efsta sæti í sínum stærðarflokki. Hafrafell var með 160 tonn og endaði í öðru sæti á eftir Sandfelli. Alls komust átta bátar yfir 100 tonn í júlí í flokki báta 21 brt. og yfir.
Ljósafell
Ljósafell er nú að landa um 75 tonnum af blönduðum afla. Þorskur 30 tonn, ýsa 18 tonn og karfi 18 tonn auk annarra tegunda. Skipið heldur aftur til veiða á föstudag.
Hoffell á landleið
Hoffell er á landleið með 950 tonn af makríl og verður í fyrramálið. Hoffell fór út á fimmtudagskvöldið frá Fáskrúðsfirði og stoppaði aðeins 36 tíma á miðunum en það var sólarhringssigling á miðin.
Nasl úr sjávarfangi
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga hefur fjárfest í nýsköpunarfyrirtækinu Responsible Foods ehf. sem framleiðir nasl úr fiskafurðum. Responsible Foods var stofnað árið 2019 af Dr. Holly T. Kristinsson með það að markmiði að umbylta naslmarkaðnum með nýju heilsunasli sem fyrirtækið hefur þróað undir vörumerkinu Næra TM. Fyrirtækið notar nýja tækni sem gerir það mögulegt að vinna og þurrka matvæli og önnur hráefni hraðar og við lægra hitastig en áður hefur verið hægt sem gerir það að verkum að hægt er að framleiða vörur með mjög hátt næringargildi og langt geymsluþol við stofuhita.
Responsible Foods hefur byggt upp verksmiðju í Húsi Sjávarklasans í Reykjavík sem framleiðir nasl úr öðru hráefni en fiski, þannig að þar er reynsla og kunnátta fyrir hendi. Fyrirhugað er að sú framleiðsla komi á markað í haust.
Á næstu mánuðum verður unnið að uppsetningu vinnslu á Fáskrúðsfirði sem mun vinna nasl úr sjávarfangi en þar mun að sjálfsögðu verða notast við gæðahráefni frá Loðnuvinnslunni. Við framleiðsluna á Fáskrúðsfirði gætu skapast allt að 10 ný störf á næstu árum.
Nasl sem inniheldur hátt hlutfall próteins og annarra næringarefna, auk þess að teljast “lítið unnin” og “hrein” matvæli njóta mikilla vinsælda og er mikill vöxtur á markaði sem býður uppá hollari valkost.
Kaupfélagið og Loðnuvinnslan eru með þessari fjárfestingu að færa svolítið út kvíarnar í framleiðslu sjávarafurða og eru spennandi tímar framundan í þeim efnum.
BÓA
Fáskrúðsfjörður á fallegum degi. Ljósmynd: Óðinn Magnason
Hoffell SU
Hoffell er væntanlegt í land snemma í fyrramálið með um 700 tonn af makríl sem fenginn er í Smugunni. Smugan er alþjóðlegt hafsvæði NA af landinu. Hoffell var að veiða um 270 mílur frá Fáskrúðsfirði og tekur siglingin heim rúma 20 tíma.
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í gærkvöldi með tæp 100 tonn. 35 tonn þorskur, 40 tonn ufsi, 20 tonn karfi og annar fiskur.
Ljósafell aftur út kl. 8 á þriðjudagsmorgun.
Hoffell SU
Hoffell kom í land í gær með tæplega 600 tonn. 450 tonn makríll og 150 tonn síld.
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í gærkvöld með fullfermi tæp 100 tonn. 40 tonn þorskur 20 tonn ýsa, 16 tonn karfi, 15 tonn ufsi og annar afli.
Makrílútskipun
Samskip Arctic kom í gær, sunnudag til Fáskúðsfjarðar að sækja um 500 tonn af makríl sem send verða til Evrópu.