Ljósafell
Ljósafell er nú að landa 95 tonnum. Uppistaða aflans er þorskur, 45 tonn og ufsi, 30 tonn. Skipið heldur aftur til veiða á morgun, þriðjudag 18. september kl 13:00
Ljósafell
Ljósafell landaði á mánudaginn um 100 tonnum af fiski í frystihús LVF. Skipið fóra aftur á hefðbundnar veiðar um hádegi á þriðjudag.
Ljósafell
Þá er vinnsla loksins hafin að nýju í frystihúsi eftir sumarstopp. Fyrsti aflinn á nýju fiskveiðiári kom í land í morgun með Ljósafelli. Aflinn er um 95 tonn og uppistaðan ufsi, karfi og þorskur. Skipið heldur aftur til veiða á morgun, þriðjudag 4. september kl 13:00
Frystihús
Vinnsla hefst á ný í frystihúsi Loðnuvinnslunnar hf. á mánudaginn 3. september kl. 7:00.
Ljósafellið er nú að leggja í fyrstu veiðiferð á nýju kvótaári og landar á mánudaginn.
Hoffell
Hoffell er nú að landa um 250 tonnum af makríl. Þetta er síðasti farmur fyrir sumarstopp, en einnig eru veiðiheimildir í síld og makríl nánast búnar. Starfsfólkið ætti því að geta lyft sér upp því framundan er bæjarhátíð Fáskrúðsfirðinga „Franskir dagar“ og verslunarmannahelgin einnig skammt undan.
Hoffell
Hoffell er nú á landleið með um 390 tonn af makríl til vinnslu.
Hoffell
Nú er verið að landa um 280 tonnum af makríl sem Hoffellið kom með inn í gær. Skipið heldur aftur til veiða á laugardag kl 13:00
Hoffell
Hoffell er nú að landa um 355 tonnum af makríl og síld. Aflinn er allur flokkaður til manneldisvinnslu. Skipið heldur aftur til sömu veiða að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell er nú að landa um 335 tonnum af makríl og síld til vinnslu. Skipið fer aftur á sömu veiðar að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell er nú að landa um 300 tonnum af makríl og síld til vinnslu. Skipið heldur aftur til veiða að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell er nú að landa makríl og síld sem fékkst í Hornafjarðardýpi. Aflinn er um 260 tonn, mest makríll. Skipið heldur aftur til sömu veiða að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell landaði í dag 252 tonnum af makríl og síld til vinnslu. Skipið heldur aftur til veiða á morgun, laugardag kl 15:00