Fiskur er okkar fag

Loðnuvinnslan hf.

Fréttir

Hoffell með 10.000 tonn

Hoffell með 10.000 tonn

Síðdegis í dag, þriðjudaginn 28.apríl, kom Hoffell að landi með tæplega 1700 tonn af kolmunna. Með þessum kolmunna afla er Hoffell komið í 10.000 tonn og er eins og sakir standa aflahæst uppsjávarveiðiskipa þrátt fyrir að vera burðarminna en flest hinna skipanna á...

Fagraberg FD

Fagraberg FD

Fagraberg frá Fuglafirði í Færeyjum,  kom til Fáskrúðsfjarðar um kl. 01.00, s.l. nótt með um 2.800 tonn af kolmunna.

Ljósafell SU

Ljósafell kom í land í gær, laugardag með fullfermi, eða tæp 100 tonn.  Aflinn er 50 tonn ufsi, 35 tonn þorskur og 15 tonn karfi auk meðafla.  Ljósafell landaði sl. miðvikudag 40 tonnum. Góð vika hjá Ljósafelli. OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Norðingur KG 21

Norðingur KG 21

Færeyska skipið Norðingur kom inn til löndunar á Fáskrúðsfirði í gær, sumardaginn fyrsta með um 1781 tonn af kolmunna.

Hoffell SU

Hoffell SU

Hoffell kom til hafnar á Fáskrúðsfirði snemma í morgun með rúm 1.600 tonn af kolmunna, en skipið var á veiðum um 160 sjómílur suður af Færeyjum. Þetta er fyrsti túrinn hjá Hoffelli eftir að kolmunninn fór að gefa sig við Færeyjar.

KAPRIFOL

KAPRIFOL

Lýsisútskipun var hjá Loðnuvinnslunni hf um liðna helgi. Skipað var út rúmum 2000 tonnum af lýsi um borð í Kaprifol og siglir hann með það til Færeyja.

Sendu okkur línu

Finnurðu ekki uppýsingarnar sem þú ert að leita að?
Ekki hika við að hafa samband við okkur.

Hvar eru skipin?

Skoðaðu hvar skipin okkar eru stödd.

Loðnuvinnslan hf

Skólavegur 59
750 Fáskrúðsfjörður

kt. 581201-2650