Vorfundir KFFB og LVF
Tummas T
Færeyska skipið Tummas T kom til Fáskrúðsfjarðar í gær, mánudag með tæp 1200 tonn af kolmunna.
Ljósafell SU
Ljósafell kom að landi síðastliðinn sunnudag, Hvítasunnudag með um 100 tonn eftir aðeins 3 daga á veiðum. Alfinn er 40 tonn þorskur, 30 tonn ufsi, 25 tonn karfi og annar afli.
Línubátar
Veiði hjá línubátunum hefur gengið þokkalega það sem af er maí. Sandfell er á landleið til Stöðvarfjarðar í dag með 15 tonn eftir tvær lagnir. Hafrafell er sömuleiðis á landleið, en til Neskaupstaðar með rúm 17 tonn eftir tvær lagnir. Það sem af er mánuði hefur Sandfell þá landað 255 tonnum og Hafrafell 232 tonnum.
Ljósafell
Ljósafell landaði á mánudaginn 25. maí rúmlega 106 tonnum og var uppistaðan þorskur og ufsi. Skipið er svo komið aftur inn í dag 28. maí með um 60 tonn af þorski. Skipið heldur aftur til veiða að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell er nú að landa um 1200 tonnum af kolmunna. Skipið heldur að löndun lokinn til Færeyja þar sem skipið verður í slipp næstu vikurnar.
Gitte Henning
Færeyska uppsjávarskipið Gitte Henning kemur í kvöld með 2.700 tonn af kolmunna til bræðslu. Skipið er byggt 2018 og er mjög vel útbúið. Útgerðin frá Götu í Færeyjum keypti skipið frá Danmörku í fyrra. Sama útgerð er einnig eigandi af Finni Frida, Þrándi í Götu og Tummas T.
Átta skip frá Færeyjum hafa landað á síðustu tveimur mánuðum á Fáskrúðsfirði tæpum 20.000 tonnum af kolmunna. Með afla Hoffells hefur verksmiðja Loðnuvinnslunnar tekið á móti 33.000 tonnum.
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í morgun með tæp 80 tonn eftir rúma tvo sólarhringa á veiðum.
Aflinn er um 40 tonn ufsi, 20 tonn karfi, 15 tonn þorskur og annar afli.
Hafrafell og Sandfell
Það sem liðið er af maí hefur veiði bátana Sandfells og Hafrafells verið mjög góð. Hafa þeir landað samtals um 300 tonnum á fyrstu 16 dögunum. Sandfell hefur landað um 160 tonnum og Hafrafell um 140 tonnum.
Hoffell SU 802
Í dag eru um 3. ár síðan að „gamla“ Hoffellið sigldi sína síðustu ferð hér út Fáskrúðsfjörð með stefnuna á Gran Canaria. Í dag heitir skipið Zander 2 og er gert út frá Marokkó
Meðfylgjandi myndir voru teknar nýlega af skipinu í slipp í Las Palmas.
Hoffell SU
Hoffell kom inn til löndunar í morgun með um 1.650 tonn af kolmunna. Aflinn í þessum túr fékkst suður af Færeyjum.
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn til löndunar í gær, fimmtudag með um 100 tonn. Aflaskiptingin var 35 tonn þorskur, 40 tonn ufsi, 22 tonn karfi og annar afli. Ljósafell fór út af lokinni löndun.