Ljósafell SU
Ljósafell kom í land í morgun með 80 tonn, þar af 70 tonn þorskur, 6 tonn ýsa og annar afli.
Skipið fer út aftur þegar veðrið gengur niður.
Aflabrögð í nóvember
Það sem liðið er af nóvembermánuði hefur fiskast vel hjá bátunum Hafrafelli og Sandfelli, þrátt fyrir rysjótt veður. Bátarnir er búnir að veiða samtals um 237 tonn. Hafrafell með 122 tonn og Sandfell með 115 tonn.
Ljósafell
Ljósafell kom inn í dag með 55 tonn. Aflinn er að mestu þorskur. Ljósafell fer út kl. 13.00 á miðvikudaginn.
Hoffell SU
Hoffell er á landleið með 750 tonn af síld og verður í landi í fyrramálið. Aflinn var fenginn vestur af Reykjanesi.
Ágætis veiði var þar síðasta sólarhringinn, en skipið stoppaði 2 sólarhringa á miðunum. Síldin verður sötuð fyrir markað á Norðurlöndunum.
Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í morgun með 45 tonn og fór strax út eftir löndun. Aflinn er að mestu þorskur.
Ljósafell landaði 100 tonnum sl. mánudag og er búið að landa því 145 tonnum í vikunni.
Framkvæmdir í fiskmjölsverksmiðju
Í dag kom flutningaskipið Sun Rio með nýjan gufuþurrkara frá Haarslev í Danmörku í fiskmjölsverksmiðjuna. Í staðinn fóru út tveir rúmlega 40 ára gamlir þurrkarar og um borð í sama skip, sem flytur þá til Marocco í Afríku. Nýji þurrkarinn er um rúmlega 100 tonn að þyngd og hífðu þrír kranar hann upp úr skipinu á frystiklefabryggjuna. Nýji þurrkarinn er um 70% stærri en hinir tveir og eykst þurrkgeta í verksmiðjunni um 15% við þessar breytingar. Reiknað er með að nýji þurrkarinn verði tekinn í notkun eftir um 3 vikur.



Hoffell með nýtt kælikerfi
Undanfarnar sex vikur hefur Hoffellið verið í slipp í Þórshöfn í Færeyjum. Stærsta verkefnið var að skipta um kælikerfi, en undirbúningsvinna fyrir þau skipti hafði verið framkvæmd í áföngum. Þá var gírinn fyrir aðalvélina einnig yfirfarinn og ljósavélin tekin upp. Kjartan Reynisson útgerðarstjóri sagði að allt hefði gengið nokkurn vegin samkvæmt áætlun og verkin væru vel unninn líkt og áður hjá frændum vorum í Færeyjum. Þá var gert við smáræði hér og þar, málað og snyrt. “Þetta var góð yfirhalning” sagði Kjartan og bætti því við að fyrirbyggjandi viðhald væri ávalt farsælast.
Skip Loðnuvinnslunnar fara að jafnaði í slipp annað hver ár, þar sem þau eru botnhreinsuð og máluð auk venjubundins viðhalds. En þegar mikið þarf að gera líkt og að skipta út kælikerfi þarf að fara oftar, það liggur í hlutarins eðli.
Nú er Hoffellið lagt af stað á miðin og mun þessi túr segja til um gæði nýja kælikerfisins en það á að geta kælt hraðar og betur en það sem fyrir var.
Ávalt hefur verið metnaður hjá LVF að hafa skip, báta, vélar og tæki í fullkomnu ástandi þannig að öryggi þeirra sem starfa sé ávalt eins og best verður á kosið. Og þá geta Hoffellsmenn raulað við störf sín: “stolt siglir fleygið mitt”.
BÓA


Ljósafell SU
Ljósafell kom inn í morgun með. tæp 100 tonn. 60 tonn þorskur, 30 tonn karfi og annar afli. Skipið fer út aftur á mánudaginn kl. 13.00
Línubátar
Afli línubátanna Hafrafells og Sandfells var njög góður í október. Afli Sandfells var um 213 tonn og vermir hann fyrsta sætið yfir aflamagn línubáta. Sandfell er svo í öðru sæti listans með um 167 tonn. Heildarafli bátanna var því um 381 tonn.
| Sæti | áður | Nafn | Heildarafli | Róðrar | Mesti afli | Höfn |
| 1 | Sandfell SU 75 | 213.1 | 15 | 23.9 | Bakkafjörður, Vopnafjörður, Neskaupstaður | |
| 2 | Hafrafell SU 65 | 167.5 | 17 | 22.5 | Vopnafjörður, Siglufjörður, Bakkafjörður | |
| 3 | Jónína Brynja ÍS 55 | 165.4 | 18 | 15.8 | Bolungarvík | |
| 4 | Fríða Dagmar ÍS 103 | 162.8 | 18 | 15.4 | Bolungarvík | |
| 5 | Kristinn HU 812 | 156.8 | 20 | 12.3 | Skagaströnd | |
| 6 | Gísli Súrsson GK 8 | 148.4 | 16 | 14.7 | Stöðvarfjörður, Hornafjörður, Neskaupstaður | |
| 7 | Óli á Stað GK 99 | 140.8 | 26 | 9.7 | Siglufjörður, Dalvík | |
| 8 | Vésteinn GK 88 | 136.1 | 14 | 15.3 | Stöðvarfjörður, Neskaupstaður | |
| 9 | Sævík GK 757 | 136.0 | 16 | 15.6 | Skagaströnd | |
| 10 | Patrekur BA 64 | 130.3 | 9 | 29.8 | Patreksfjörður | |
| 11 | Kristján HF 100 | 128.8 | 12 | 16.8 | Vopnafjörður | |
| 12 | Vigur SF 80 | 116.4 | 15 | 13.8 | Hornafjörður | |
| 13 | Særif SH 25 | 115.9 | 17 | 18.8 | Sauðárkrókur, Siglufjörður | |
| 14 | Gullhólmi SH 201 | 115.4 | 13 | 12.0 | Siglufjörður | |
| 15 | Hamar SH 224 | 112.6 | 7 | 29.3 | Rif | |
| 16 | Auður Vésteins SU 88 | 104.5 | 11 | 14.8 | Stöðvarfjörður, Neskaupstaður | |
| 17 | Geirfugl GK 66 | 97.1 | 22 | 6.7 | Siglufjörður, Dalvík | |
| 18 | Bíldsey SH 65 | 85.9 | 9 | 14.5 | Siglufjörður, Skagaströnd | |
| 19 | Stakkhamar SH 220 | 80.6 | 10 | 12.4 | Sauðárkrókur, Siglufjörður | |
| 20 | Áki í Brekku SU 760 | 77.9 | 17 | 9.0 | Breiðdalsvík | |
| 21 | Eskey ÓF 80 | 72.9 | 16 | 6.0 | Ólafsfjörður, Siglufjörður | |
| 22 | Hafdís SK 4 | 57.1 | 6 | 15.3 | Ólafsvík, Arnarstapi | |
| 23 | Indriði Kristins BA 751 | 6.5 | 1 | 6.5 | Siglufjörður |
Ljósafell SU
Ljósafell kemur inn í kvöld með 100 tonn. Aflinn er um 80 tonn þorskur og 20 tonn ýsa.
Skipið fór út sl. föstudag og gekk túrinn mjög vel. Ljósafell heldur aftur til veiða á miðvikudag.
Fréttir af Sandfelli
Það er dýrmætt þegar lífið getur gengið sinn vanagang. Ef síðustu misseri hafa kennt okkur eitthvað þá er það einmitt það. Á Sandfellinu sækja menn sjóinn rétt eins og þeir hafa gert til margra ára og það hefur gengið vel. 2000 tonn af afla kominn á land að verðmæti 500 milljóna króna! Hefð hefur skapast hjá Loðnuvinnslunni að færa áhöfnum, og öðrum starfsmönnum, köku til að fagna áföngum sem þessum. Áhöfnin á Sandfelli fékk sína köku. Rafn Arnarson skipstjóri á Sandfelli var að vonum sáttur og glaður með viðurkenninguna og kökuna. “Ég var bara einn um borð þegar kakan kom, strákarnir voru að sinna verkefnum annars staðar og ég þurfti að taka mig á að geyma kökuna þangað til þeir komu til baka” sagði þessi glaðlegi skipstjóri og bætti því við að kakan hefði verið afar góð.
En hverju skal þakka gæfuna og gengið? “Það eru margir samhangandi þættir” svaraði Rafn, “margir túrar, frábær beita, góðar áhafnir, svo eitthvað sé nefnt” bætti hann við.
Á Sandfelli eru tvær fjögurra manna áhafnir sem vinna tvær vikur í senn.
Þegar greinarhöfundur spjallaði við Rafn var Sandfell í landi á Neskaupsstað til að sinna viðhaldi á ískrapavél, stefnt á að fara til veiða þegar því yrði lokið. Rafn gerði ráð fyrir því að þeir myndu leggja utan við Norðfjörð en sagði að væntanlega styttist í að þeir flyttu sig svolítið suður á bóginn. Fiskurinn stjórnar för.
BÓA



Hafrafell gerir það gott
“Sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn” segir í ljóði Ólínu Andrésdóttur og þrátt fyrir að það ljóð sé samið á síðustu öld eiga þessi ljóðmæli enn vel við.
Áhöfnin á línubátnum Hafrafelli er skipuð sægörpum sem hafa dregið úr sjó afla að verðmæti 400 milljóna króna á árinu. 1.600 tonn af fiski. Loðnuvinnslan færði þeim köku að þessu tilefni og kunni áhöfnin vel að meta það.
Andrés Pétursson er skipstjóri á Hafrafelli og þegar hann var inntur eftir því hverju hann þakkaði þennan góða árangur svaraði hann að áhöfnin væri afbragðs góð og útgerðin væri flott. “Maður gerir ekkert einn” sagði Andrés.
Þegar greinarhöfundur náði símasambandi við Andrés hafði áhöfnin rétt lokið við að leggja línu og ætluðu að fara í kaffi og njóta þess að borða það sem eftir var af kökunni góðu. “Það var æðslegt að fá kökuna, hún er mjög góð og svo er alltaf gaman að fá viðurkenningu á vel unnu starfi” sagði skipstjórinn.
Á Hafrafelli eru tvær fjögurra manna áhafnir sem vinna tvær vikur í senn. Sækja þá stíft sjóinn og þegar það verða áhafnaskipti eiga menn frí í tvær vikur.
Áhafnarmeðlimum á Hafrafelli eru færðar hamingjuóskir með góðan árangur og þeim fylgja áframhaldandi óskir um gott gengi og gæfu.
BÓA



