Línubátar

Listi númer 6. af vef Aflafrétta

Sandfell SU og Hafrafell SU með ansi mikla yfirburði í mars. Voru þeir einu bátarnir sem náðu yfir 200 tonna markið

SætiáðurNafnHeildarafliRóðrarMesti afliHöfn
11Sandfell SU 75244.62515.6Grindavík, Þorlákshöfn, Sandgerði
22Hafrafell SU 65208.72414.9Grindavík, Þorlákshöfn, Sandgerði
34Vésteinn GK 88192.82116.0Grindavík, Þorlákshöfn
43Gísli Súrsson GK 8181.82215.8Grindavík, Sandgerði
56Auður Vésteins SU 88177.02213.4Grindavík, Sandgerði
65Fríða Dagmar ÍS 103158.21616.6Bolungarvík
78Hamar SH 224154.1550.1Rif
810Kristján HF 100153.82014.7Grindavík, Sandgerði, Reykjavík
97Patrekur BA 64146.6832.9Patreksfjörður
109Jónína Brynja ÍS 55146.61617.9Bolungarvík
1111Geirfugl GK 66138.71715.0Grindavík
1212Indriði Kristins BA 751132.41818.2Grindavík, Tálknafjörður, Bolungarvík, Hafnarfjörður, Sandgerði
1313Óli á Stað GK 99129.71613.4Grindavík
1415Stakkhamar SH 220111.61216.1Grindavík, Rif, Sandgerði, Akranes
1514Einar Guðnason ÍS 30396.9915.9Suðureyri
1621Kristinn HU 81282.0717.3Ólafsvík
1716Áki í Brekku SU 76080.81511.2Breiðdalsvík
1820Gullhólmi SH 20177.21012.6Sandgerði, Rif
1917Vigur SF 8075.91314.4Hornafjörður
2018Særif SH 2574.6616.1Rif, Bolungarvík
2119Hafdís SK 470.0517.8Ólafsvík
22Máni II ÁR 747.897.7Þorlákshöfn
2322Bíldsey SH 6544.2813.5Grindavík, Rif, Sandgerði
2423Eskey ÓF 8020.573.4Akranes

Hoffell SU

Listi númer 6. hjá Aflafréttum

Aðeins eitt skip kemur með afla á þennan lista  og var það Hoffell SU sem kom með 1700 tonn af kolmunna í einni löndun.

 

SætiSæti áðurNafnHeildarafliLandanirLoðnaSíldKolmunniMakríll
11Beitir NK 10361773303024
55Hoffell SU 809874728774706515
22Venus NS 1509183571122043
33Börkur NK 8660564652186
44Víkingur AK8298560442238
66Polar Amaroq 3865663196631
77Aðalsteinn Jónsson SU 6075441151942
88Jón Kjartansson SU Nýi6018437842234
99Heimaey VE556355563
1010Sigurður VE 474264615
1111Bjarni Ólafsson AK 3860320991761
1212Álsey VE 373133731
1313Ísleifur VE334543345
1414Kap VE 332253321
default

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn um hádegi í dag með 75 tonna afla. 60 tonn þorskur, 7 tonn karfi, 6 tonn ufsi og annar afli.

Eftir löndun fer skipið til Reykjavíkur og settar verða í það krapavélar.  Eftir það verður skipið með eigin krapavinnslu og þarf ekki að taka ís úr landi.  Við þessar breytingar tekur skipið um 10-15% meiri afla í lest. Áætlað er að verkið taki tæpar tvær vikur.

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn til Þorlákshafnar í morgun með 60 tonn af fiski.  Aflinn er um 50 tonn karfi og 10 tonn ufsi og annar afli.

Skipið fer út eftir löndun.  Túrinn hjá Ljósafelli var aðeins tæpir tveir sólarhringar, en skipið fór út frá Þorlákshöfn sl mánudag.

Ljósafell SU

Ljósafell landaði 40 tonnum  sl. fimmtudag í Þorlákshöfn og svo 70 tonnum aftur í morgun.

Heildaraflinn er um 110 tonn. Ýsa um 50 tonn, þorskur um 30 tonn, ufsi um 20 tonn og svo annar afli  Fiskurinn er fluttur landleiðina austur á Fáskrúðsfjörð til vinnslu.

Norderveg landar kolmunna

Norderveg kom í dag með 2.100 tonn af kolmunna af miðunum við Írland,  Skipin frá Noregi geta veitt innan landhelgi Írlands.

Þetta er annar kolmunnatúrinn sem Norderveg kemur til Fáskrúðsfjarðar.

Ljósafell

Ljósafell kom í gær inn til Reykjavíkur með 76 tonn af blönduðum afla.  Aflinn var 24 tonn þorskur, 15 tonn ýsa, 8 tonn ufsi, 28 tonn karfi og annar afli.

Skipið fer út aftur að lokinni löndun.

Hoffell SU

Hoffell er á landleið með 1.650 tonn af kolmunna af miðunum vestur af Írlandi. Um 700 mílna sigling er af miðunum. Túrinn gekk vel, veður var gott og aflinn fékkst á rúmum 3 sólarhringum. Hoffell var eina íslenska skipið sem fór á kolmunnamiðin eftir loðnuvertíðina. Oft tekur alveg fyrir veiði á þessu svæði þegar komið er fram undir 20. mars, og er því frábært að allt gekk svona vel. Með þessum túr hefur Hoffell landað tæpum 6.500 tonnum af kolmunna og er með mestan kolmunnaafla það sem af er. Skipið verður inni eftir miðnætti í kvöld.

default

Nýtt stálgrindarhús

Austan við fiskmjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar er risið afar reisulegt stálgrindarhús. Hús þetta kemur til með að hafa tvö hlutverk, annars vegar mjölgeymsla þegar setja þarf mjöl í sekki og hins vegar aðstaða fyrir karaþvottavél.

Húsið er 720 fermetrar og eru 10 metrar upp í mæni, með steyptum grunni og steyptum eins meters háum vegg þar sem stálgrindin er fest ofan á.

Sigurður Ingi Ólafsson stálhönnuður hannaði stálgrindina og flutti inn frá Póllandi. Ekki er þetta fyrsta hús Sigurðar hér á Fáskrúðsfirði því hann hannaði einnig frystigeymsluna sem og bygginguna sem hýsir svo kallað hreinsivirki, en þar fer hrognavinnsla fram.

Sigurður hefur hannað byggingar og brýr úr stálgrindum bæði hér heima og erlendis og nægir þar að nefna fallegar göngubrýr í Elliðavogi í Reykjavík.

Elís Eiríksson byggingarverkfræðingur var hönnunarstjóri hússins og hafa Elís og Sigurður unnið saman að allmörgum byggingum.  Í spjalli við þá félagana kom fram að aðal vinnan væri fólgin í því að hanna stálgrindinda og allar festingar þannig að allt félli saman líkt og flís við rass og þegar borið var á þá hól fyrir vel unnin störf svaraði Sigurður brosandi: “við erum snillingar”. 

Magnús Þórarinsson og Baldur Bragason smiðir höfðu svo veg og vanda af því að reisa húsið á grunninn sem þeir byggðu s.l haust. “4.janúar byrjuðum við svo að reisa húsið og það var búið að loka því í fyrstu viku febrúarmánaðar” sagði Magnús og staðfesti að byggingin væri svo vel hönnuð  að leikur einn hefði verið að koma henni upp því allt passaði og engin vandamál komu upp. Starfsmenn fiskmjölsverksmiðjunnar lögðu líka sitt lóð á vogarskálarnar með því að vinna að uppsetningu hússins undir handleiðslu smiðanna Magnúsar og Baldurs. Með samhentu átaki er hægt að koma miklu til leiðar.

Magnús Ásgrímsson er verksmiðjustjóri fiskmjölsverksmiðjunnar og sagði hann að húsið væri kærkomið því að það framleiðslutími á mjöli væri aðallega á veturna og vorin en neyslutími – sölutími, væri á sumrin og haustin þannig að gott og öruggt húsnæði fyrir lagerinn væri nauðsynlegur þar til varan væri afhent kaupendum.

Loðnuvinnslan vinnur  sífellt að því að  bæta aðstöðu, endurnýja tæki og tól og auka tækni í allri starfsemi og er þessi bygging einn hlekkur í þeirri mikilvægu keðju.

BÓA

Sigurður Ingi Ólafsson og Elís Eiríksson
Baldur Bragason og Magnús Þórarinnsson
Magnús Ásgrímsson

Bátar yfir 21 BT í mars. nr.3

Eins og sést á eftirfarandi úttekt Aflafrétta, gengur veiði Sandfells og Hafrafell vel og verma þeir annað og þriðja sæti yfir landaðan afla marsmánaðar.

SætiáðurNafnHeildarafliRóðrarMesti afliHöfn
13Fríða Dagmar ÍS 10397.7816.6Bolungarvík
25Sandfell SU 7596.71014.9Grindavík, Þorlákshöfn
32Hafrafell SU 6589.41114.9Grindavík, Þorlákshöfn
4Hamar SH 22482.6343.8Rif
51Einar Guðnason ÍS 30381.0814.4Suðureyri
64Jónína Brynja ÍS 5579.8817.9Bolungarvík
711Særif SH 2574.6616.1Rif, Bolungarvík
819Patrekur BA 6472.1332.9Patreksfjörður
98Hafdís SK 470.0517.8Ólafsvík
1016Vésteinn GK 8869.0912.3Grindavík
1120Auður Vésteins SU 8865.2811.4Grindavík, Sandgerði
129Gísli Súrsson GK 862.2912.0Grindavík, Sandgerði
1312Óli á Stað GK 9961.4812.4Grindavík
146Kristinn HU 81261.0517.0Ólafsvík
1510Kristján HF 10058.5810.3Grindavík, Sandgerði
16Geirfugl GK 6658.1715.0Grindavík
1717Indriði Kristins BA 75157.0418.2Bolungarvík, Tálknafjörður
1815Vigur SF 8053.3714.4Hornafjörður
197Gullhólmi SH 20150.4612.6Rif
2013Áki í Brekku SU 76037.377.4Breiðdalsvík
2121Stakkhamar SH 22034.0510.1Rif
2218Bíldsey SH 6523.149.5Rif
2321Eskey ÓF 802.712.7Akranes

Heimild, Aflafréttir

Ljósafell SU

Ljósafell kemur inn til Reykjavíkur í kvöld með 105 tonn.  Aflinn er 75 tonn þorskur og 30 tonn karfi.

Túrinn var stuttur og  gekk mjög vel,  en skipið landaði 70 tonnum í Þorlákshöfn á föstudaginn og fór út strax aftur og er núna á landleið.

Núna verður gefið hafnarfrí og skipið fer út aftur á miðvikudagskvöld.

Norderveg

Norderveg kom inn í morgun með 1.400 tonn af kolmunna til bræðslu.

Veiðin var vestan við Írland.