Ljósafell

Ljósafell er nú að landa um 50 tonnum eftir stuttan túr. Uppistaða aflans er þorskur. Þetta er fyrsta heimalöndun skipsins eftir að hafa tekið þátt í togararalli Hafrannnsóknarstofnunar undanfarnar þrjár vikur. Jafnframt er þetta fyrsti vinnsludagur frystihússins í bolfiski eftir að hrognafrystingu lauk á þriðjudag.

Ljósafell

Ljósafell landaði fyrir helgi í Reykjavík þegar lokið var við 119 togstöðvar í togararalli Hafró. Skipið fór aftur á sjó í gær, sunnudag og voru komnir í stöð 128 af samtals 183 stöðvum þegar haft var samband við skipið í morgunn.

Hoffellin

Hoffellin komu um helgina og er búið að landa úr Hoffelli SU 80 og er hann á leið á loðnumiðin aftur. Verið er að landa úr þeim gamla, Hoffelli SU 802 í dag.

Afskipanir

Síðustu daga var skipað út rúmlega 1000 tonnum af frosnum afurðum í tvö flutningaskip, Ölmu og Samskip Frost sem sést á myndinni.

Hoffellin

Hoffellin eru bæði búin að landa. Sá Gamli lagði af stað í gær kl 16:00 eftir að hafa landað um 1050 tonnum, og sá Græni í morgunn kl 08:00 eftir að hafa landað um 1260 tonnum. Aflinn fór allur í hrognatöku.

Finnur Fríði

Andri Hansen skipstjóri á Finni Fríða

Færeyska fjölveiðiskipið Finnur Fríði FD 86 er okkur Fáskrúðsfirðingum að góðu kunnugt enda hefur það lagt upp afla hjá Loðnuvinnslunni til fjölda ára.  Skipstjóri á Finni Fríða er Andri Hansen, ungur maður með góða nærveru og þétt handtak. Það fékk undirrituð að upplifa í spjalli yfir kaffibolla að morgni dags þar sem rigningin bankaði létt á glugga á milli þess sem sólin reyndi að brjótast fram.

Þegar Andri var inntur eftir því hvaðan nafnið Finnur Fríði kæmi sagði hann að norskur maður að nafni Finnur, með viðurnefnið hinn fríði vegna þess hve fríður og föngulegur hann var, ætti sér sess í færeyskri sögu og t.a.m. hefur verið ort um hann og Hálvdán bróður hans mikill vísnabálkur uppá 97 vísur þar sem sagt er frá því er þeir bræður fara til Írlands til að krækja í dóttur kóngsins, lentu þeir þar í bardaga við menn kóngsins og segir í einni vísunni að Finnur hafi barist við tólf hermenn í einu. Í lok vísnabálksins deyr Finnur en Hálvdán bróðir hans lifir. Við þessar vísur er gjarnan sungið fallegt lag og  dansaður færeyskur hringdans. Þannig að segja má með sanni að þetta fallega skip beri nafn með rentu.

Finnur Fríði var smíðaður í Noregi árið 2003 og var Andri ráðinn skipstjóri aðeins 25 ára gamall. „Við vorum tveir“, sagði Andri,“ ég og Bogi Jakobsen sem voru stýrimenn hjá föður mínum Arne Hansen á gamla Þrándi í Götu og hann kenndi okkur allt sem hann kunni til þess að verða góðir skipstjórar“.

Þegar Andri var spurður að því af hverju þeir kæmu aftur og aftur hingað til Fáskrúðsfjarðar svaraði hann því til að ástæðan væri helst sú að útgerð Finns Fríða ætti í góðu sambandi við Loðnuvinnsluna, „hér fáum við gott verð og góða þjónustu“ sagði hann.  „Að auki hafa myndast vinasambönd, við þekkjum orðið fólk hér, bæði á skrifstofunni og í Bræðslunni. Sem dæmi um það hve vel er tekið á móti okkur þá ætlar Kjartan (Reynisson) að keyra með okkur í rútu að Kárahnjúkavirkjun til að skoða hana“.

Þegar skip koma að landi eftir langa útiveru þarf oft að versla við heimamenn. Það þarf að kaupa varahluti, olíu, matvöru, fá þjónustu vegna veiðafæra og annað í þeim dúr og þar sem Færeyingar og Íslendingar eiga það sameiginlegt að vera aðdáendur sauðkindarinnar og þeirra afurða sem rekja má til hennar, hefur það sést all oft í verslun hér á Búðum þegar Færeyskir sjómenn kaupa  íslenskan lopa í stórum stíl, „hann er ódýrari heldur en heima“ sagði Andri brosandi þegar minnst var á lopakaupin.  „Og síldin, marineraða síldin sem er framleidd hér á Fáskrúðsfirði, það er besta síldin, við verðum alltaf glaðir að fá hana“.

Eins og mörgum er kunnugt tók áhöfnin á Finni Fríða þátt í björgunaraðgerðum í utanverðum Skagafirði á dögunum. Neyðarkall barst frá báti með tveimur mönnum innanborðs og er skemmst frá því að segja að mönnunum var bjargað úr gúmmíbáti um borð í Finn Fríða. Þegar undirrituð bað Andra segja svolítið frá þessu atviki sagði hann:“ Við vorum við loðnuveiðar í Faxaflóa og þegar við vorum komnir með 1100 tonn var lagt af stað til Fáskrúðsfjarðar til löndunar, ég ákvað að fara norður fyrir land vegna veðurs. Þegar við vorum úti fyrir Skagafirði kom kallið og við brugðumst strax við, fundum mennina í gúmmíbátnum, tókum þá um borð og gáfum þeim heita súpu og kaffi og teppi til að koma í sig hita. Stuttu síðar kom þyrlan og sótti mennina og við héldum áfram ferð okkar“.  Aðspurður að því hvort að menn þurfi að hugsa sig um þegar kall eins og þetta berst svaraði Andri um hæl: „nei, menn fara bara af stað, allt annað má bíða“.

Þegar Finnur Fríði heldur úr höfn á Fáskrúðsfirði er stefnan tekin vestur af Írlandi til að veiða kolmuna en Andri Hansen skipstjóri er að fara í frí, hann fer heim til Færeyja að hitta eiginkonu og  börnin sín þrjú og kveður undirritaða með hvatningarorðum um að heimsækja Færeyjar til að sjá sérstaka græna litinn sem einkennir þessar fallegu eyjar.

BÓA

Hornfirðingar landa

Hornafjarðarskipin Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson lönduðu bæði loðnu á Fáskrúðsfirði um helgina. Jóna Eðvalds var með um 1000 tonn og Ásgrímur 1100 og fóru báðir farmarnir í hrognatöku.

Högaberg

Færeysku bátarnir Finnur Fríði og Högaberg hafa báðir komið með loðnu til hrognatöku. Finnur landaði um 1200 tonnum í nótt og Högabergið er komið undir með annað eins.

Nýr verkstjóri

Hannes og sonur hans Brynjar Auðunn

Í janúar s.l. var ráðinn til starfa hjá Loðnuvinnslunni nýr verkstjóri sem ber nafnið Hannes Auðunsson. Hann fluttist til Fáskrúðsfjarðar í byrjun árs ásamt konu sinni, Angeliku Ewu Filimonow og tveggja ára gömlum syni þeirra. Að auki á Hannes annan dreng sem er fimm ára og býr hann í Grindavík. Hingað fluttu þau hjónin frá Stykkishólmi.

Hannes er fæddur 22.júlí 1988 og er því 28 ára gamall. Faðir hans er íslenskur en móðir hans er frá Nýja Sjálandi.  Fyrstu þrjú ár ævi sinnar ólst Hannes upp á Djúpavogi en flutti þá með móður sinni til Nýja Sjálands og barnæsku sinni eyddi hann ýmist hjá föður sínum á Djúpavogi eða móður sinni á Nýja Sjálandi.  Árið 2006 kom hann síðan  til Íslands til að hefja menntaskólagöngu.

Hannes ól draum í brjósti sínu á yngri árum, hann dreymdi um að verða flugmaður og í þeim tilgangi að vinna sér inn peninga fyrir flugnámi, réð hann sig til starfa hjá Vísi á Djúpavogi. En þá gripu örlögin í taumana er hann kynntist konunni sinni sem hafði komið frá Póllandi til Djúpavogs að vinna.

Er undirrituð innti Hannes um ástæðu þess að hann og fjölskyldan komu til Fáskrúðsfjarðar sagði hann að umfjöllun sem birtist í blaði í fyrra, um tækninýjungar í Frystihúsinu hefðu fyrst vakið áhuga hans á Loðnuvinnslunni og síðan þegar auglýst var laust starf verkstjóra ákvað hann að sækja um og  „varð mjög sáttur þegar ég fékk það“ bætti hann við.  „Ég sá þetta sem tækifæri og konan mín var til í að flytja, og þrátt fyrir að ekki sé lengri tími liðinn síðan ég hóf störf, þá leggst þetta mjög vel í mig“ sagði Hannes  „það var afar vel tekið á móti okkur hér, hvort heldur  í vinnu, leikskóla drengsins eða út í samfélaginu, kannski verð ég bara gamall hér“ sagði þessi ungi verkstjóri að lokum og kvaddi með bros á vör.

BÓA

Hoffell SU 80

Hoffell er væntanlegt í dag með rúm 1200 tonn af loðnu. Skipið landaði einnig 1200 tonnum til heilfrystingar og bræðslu þann 24. febrúar.

Sandfell

Sandfell er að landa á Fáskrúðsfirði í dag. Aflinn er um 5 tonn.

Ljósafell

Ljósafell er að landa fyrsta túr eftir verkfall. Aflinn er um 70 tonn og fer ýmist í vinnslu í Frystihúsi LVF og á Fiskmarkað. Næsta verkefni áhafnar og skips er að fara í árlegt Togararall Hafrannsóknarstofnunar sem hefst á laugardag.