Ljósafell
Ljósafell er nú að landa um 95 tonnum og er uppistaða aflans þorskur og ufsi. Brottför í næstu veiðiferð er um miðnættið í kvöld, þriðjudag 22. maí.
Gangurinn hefur verið góður að undanförnu og hefur skipið landa þétt.
Föstudaginn 18. maí, 60 tonn
Mánudaginn 14. maí, 105 tonn
Fimmtudaginn 10. maí, 85 tonn
Mánudaginn 7. maí, 108 tonn.
Loðnuvinnslan styrkir samfélagið
Á aðalfundi Loðnuvinnslunnar sem haldinn var í Wathnessjóhúsinu þann 15.maí voru afhentir styrkir til félagasamtaka að upphæð tæplega 16 milljónir króna. Björgunarsveitin Geisli hlaut 1 milljón króna í styrk til reksturs á björgunarskipinu Hafdísi. Grétar Helgi Geirsson formaður Geisla tók við styrknum og þakkaði Loðnuvinnslunni fyrir stuðninginn og sagði að gott væri að eiga bakhjarl sem „vissi að það er dýrt að vera í útgerð“. Hafdís hefur sem betur fer ekki þurft að sinna mörgum aðkallandi björgunarverkum, þótt önnur verkefni séu ærin, en Hafdísin sannaði þó mátt sinn og megin og var langfyrst á vettvang þegar stórt flutningaskip strandaði við Vattarnes á síðasta ári. Fyrir Fáskrúðsfjörð sem og aðra Austfirðinga sem eiga synir og dætur á sjó er björgunarbáturinn Hafdís mikið öryggistæki. Grétar sagði að styrkur Loðnuvinnslunnar færi í almennan rekstur bátsins og nefndi sem dæmi tryggingar, botnhreinsun og almennt viðhald en allt kostar þetta mikla peninga.
Þá fengu félagasamtök um Franska daga 800 þúsund kónur eins og sagt var frá með styrkjum Kaupfélagsins. Loðnuvinnslan hefur styrkt Franska daga frá upphafi og er stoltur stuðningsaðili.
Starfsmannafélag Loðnuvinnslunnar fékk 6 milljónir króna í styrk til sinnar starfssemi. Alberta Eide Guðjónsdóttir tók við styrknum fyrir hönd Starfsmannafélagsins og sagði styrkinn afar mikilvægan fyrir félagið. „Við værum ekki að fara neitt, eða gera neitt, ef þessa styrks nyti ekki við“ sagði Alberta og vísaði í fyrirhugaða ferð Starfsmannafélagsins til Póllands í haust. Starfsmannafélagið hefur verið iðið að skipuleggja lengri og skemmri ferðir fyrir sína félagsmenn og styrkur Loðnuvinnslunnar gerir það að verkum að hver félagsmaður þarf að greiða umtalsvert minna úr eigin vasa.
Þá fékk Knattspyrnudeild Leiknis 8 milljónir króna í styrk. Loðnuvinnslan hefur verið helsti styrktaraðili Knattspyrnudeildar Leiknis um áraraðir. Styrkurinn felst í búningakaupum, láni á rútu LVF (sem á stundum gengur undir nafninu Leiknisrútan, með slíkum ágætum er samstarfið), auk fjárstyrks. Valur Sveinsson tók við styrknum fyrir hönd Knattspyrnudeildarinnar og stjórn þeirrar sömu deildar þakkar Loðnuvinnslunni fyrir stuðninginn og tryggðina i gegn um árin og segir að styrkur LVF geri gæfumuninn á rekstri deildarinnar.
Kaupfélagið styrkir samfélagið
Á aðalfundi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga, sem haldinn var í Wathnessjóhúsinu þann 15.maí voru félagasamtökum og stofnunum færðar góðar gjafir. Heilsugæslustöðinni á Fáskrúðsfirði voru færðar 2 milljónir króna til kaupa á tækjum og sérfræðiþjónustu. Jónína Óskarsdóttir fagstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði, tók á móti styrknum fyrir hönd Heilsugæslustöðvarinnar. Sagði Jónína að stuðningur Kaupfélagsins væri gríðarlega mikilvægur og gagnast afar vel. „Tækjakosturinn á Heilsugæslustöðinni á Fáskrúðsfirði er einn sá besti sem völ er á“ sagði Jónína um leið og hún þakkaði fyrir velvildina.
Þá var félagsskapnum Franskir dagar færðar 800 þúsund krónur til þess að halda árlega bæjarhátið okkar Fáskrúðsfirðinga. María Óskarsdóttir tók við styrknum fyrir hönd Franskra daga og sagði að stuðningur Kaupfélagsins og Loðnuvinnslunnar, sem lagði einnig 800 þúsund krónur til hátíðarinnar, skipta sköpum. „Styrkurinn frá þessum tveimur aðilum gerir okkur kleift að halda hátíðina“ sagði María og bætti því við að Kaupfélagið og Loðnuvinnslan væri lang stærsti stuðningsaðili Franskra daga.
Félagsskapur heimamanna um byggingu Fjölskyldu- og útivistagarðs á Fáskrúðsfirði hlaut 1.5 milljónir króna í styrk til sinnar starfssemi. Hefur uppbygging Fjölskyldugarðsins verið styrkt af einstaklingum og fyrirtækjum í samvinnu við Fjarðabyggð. Linda Kristinsdóttir tók við styrknum fyrir hönd félagsskaparins. Hrefna Eyþórsdóttir er forsvarskona fyrir Fjölskyldu- og útivistagarðinn og aðspurð um þýðingu þess að fá styrk sem þennan sagði hún: „Við erum mjög þakklát. Að fá þennan styrk gerir það að verkum að við náum að klára fjármögnun og uppsetningu ærslabelgsins, sem er fyrsta verkefnið okkar. Fjölskyldu- og útivistagarðurinn á eftir að skapa fullt af gleði og gæðastundum fyrir alla aldurshópa og gera fallega Fáskrúðsfjörð að enn betri stað til að búa á og heim að sækja“.
Hollvinasamtök félagsheimilisins Skrúðs fengu styrk uppá 1 milljón króna. Jóna Björg Jónsdóttir tók við styrknum fyrir hönd Hollvinasamtakanna. Sagði Jóna að styrkurinn skipti sköpum fyrir Skrúð og kæmi ríkulega á móti framlagi Fjarðabyggðar til uppbyggingar okkar góða félagsheimilis. „Þetta er afar myndarlegur styrkur“ sagði Jóna „ og við erum mjög þakklát honum“. Þá tíundaði Jóna stuttlega það sem gert hefur verið í Skrúð hin síðari ár til endurnýjunar og nefndi meðal annars nýja glugga sem eru að verða að meirihluta nýir. Þá nefndi hún einnig að huga þyrfti að því að lagfæra aðgengi fyrir fatlaða í Skrúð þar sem ekki var hugað að slíku þegar húsið var byggt árið 1966.
Nýr verkstjóri
Sigurjón Jónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Loðnuvinnslunni sem verkstjóri í frystihúsinu og mun hann hefja störf í lok maí. Hann hefur víðtæka reynslu í sjávarútvegi og starfað sem vinnslustjóri hjá mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum. Má þar nefna Jón Erlingsson ehf, Pólarsíld hf og Valbjörn ehf.
Síðustu ár hefur hann starfað hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli sem flugöryggisvörður.
Sigurjón er fæddur árið 1957, giftur og eiga þau hjónin sjö uppkomin börn.
Við bjóðum Sigurjón velkominn til starfa hjá Loðnuvinnslunni.