Sandfell og Hafrafell aflahæðstir það sem af er nóvember.
Sandfell með 190 tonn í 14 róðrum og Hafrafell með 184 tonn í 15 róðrum.
Sæti | áður | Nafn | Heildarafli | Róðrar | Mesti afli | Höfn |
1 | 1 | Sandfell SU 75 | 189.6 | 14 | 25.1 | Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
2 | 3 | Hafrafell SU 65 | 183.4 | 15 | 24.6 | Neskaupstaður, Vopnafjörður, Breiðdalsvík |
3 | 4 | Kristján HF 100 | 155.9 | 9 | 23.1 | Eskifjörður, Neskaupstaður |
4 | 16 | Indriði Kristins BA 751 | 153.5 | 10 | 23.6 | Tálknafjörður, Vopnafjörður, Ólafsvík |
5 | 8 | Tryggvi Eðvarðs SH 2 | 151.3 | 12 | 24.9 | Ólafsvík |
6 | 5 | Jónína Brynja ÍS 55 | 144.3 | 16 | 12.2 | Bolungarvík |
7 | 2 | Fríða Dagmar ÍS 103 | 142.6 | 15 | 12.7 | Bolungarvík |
8 | 12 | Gísli Súrsson GK 8 | 123.5 | 11 | 18.8 | Eskifjörður, Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
9 | 9 | Háey I ÞH 295 | 121.9 | 12 | 18.0 | Húsavík, Raufarhöfn |
10 | 14 | Einar Guðnason ÍS 303 | 120.5 | 11 | 18.9 | Suðureyri, Þingeyri |
11 | 7 | Óli á Stað GK 99 | 118.5 | 16 | 11.3 | Siglufjörður, Dalvík |
12 | 6 | Auður Vésteins SU 88 | 115.8 | 12 | 19.2 | Stöðvarfjörður, Neskaupstaður |
13 | 17 | Særif SH 25 | 107.0 | 8 | 20.0 | Rif, Hafnarfjörður, Arnarstapi |
14 | 13 | Vigur SF 80 | 106.8 | 7 | 22.4 | Neskaupstaður |
15 | 18 | Stakkhamar SH 220 | 97.1 | 12 | 11.6 | Rif, Arnarstapi |
16 | 21 | Vésteinn GK 88 | 96.3 | 8 | 18.9 | Stöðvarfjörður |
17 | Sævík GK 757 | 75.0 | 10 | 14.9 | Sandgerði, Grindavík | |
18 | 11 | Gullhólmi SH 201 | 69.2 | 5 | 21.2 |

Mynd: Þorgeir Baldursson.

Mynd: Þorgeir Baldursson.
Hoffell kemur í kvöld með rúm 800 tonn af Síld.
Hoffell kemur í kvöld með rúm 800 tonn af Síld sem verður söltuð. Aflnn fékkst 90 mílur vestur af Reykjanesi og eru 380 mílur af miðunum á Fáskrúðsfjörð. Veður var leiðinlegt á miðunum næstum allan túrinn.

Mynd: Valgeir Mar Friðriksson.
Hoffell lagði af stað á sunnudagskvöldið frá Færeyjum eftir breytingar.
Hoffell hefur verið í Færeyjum í sl. 6 vikur vegna breytinga. Nótakassinn var stækkaður úr 130 m3 í 180 m3 og settur nýr nótakrani á skipið frá Triplex í Noregi. Spilmótorar á aðalspili voru teknir upp, glussalagnir lagðar fyrir nýtt hjálparspil á framdekki. Síðan voru ýmis smærri verk unnin.
Hoffell fór frá Færeyjum sl. sunnudagskvöld og fór beint á síldarmiðin vestur af landinu og kemur þangað í kvöld. Síldin sem veiðist verður verkuð í salt eins og venjulega hjá Loðnuvinnslunni.
Nýr og breyttur nótakassi og nýr nótakrani frá Triplex.

Mynd: Kjartan Reynisson.
Hoffell eftir breytingar í Þórshöfn í Færeyjum, nótakassinn hefur verið hækkaður en hann var stækkaður um 40%. Í baksýn sést eldra Hoffell með fullfermi af NVG-síld og bíður eftir löndun.

Mynd: Kjartan Reynisson.
Breytingar voru gerðar á yfirbyggðu dekki og hægt að ganga þaðan yfir í framskipið.

Mynd: Kjartan Reynisson.
Ljósafell kom inn í gær með fullfermi 110 tonn.
Ljósafell kom inn í gær með fullfermi 110 tonn, aflinn var 60 tonn Þorskur, 25 tonn Karfi, 15 tonn Ýsa, 5 tonn Ufsi og annar afli.
Skipið fór út í dag kl. 13.
Nýr gufuþurrkari í verksmiðjuna.
Nýr gufuþurrkari í verksmiðjuna er að verða tilbúinn út í Danmörku. Hann hann verður afhentur 5. desember n.k.
Þurrkarinn og gírinn eru um 114 tonn. Er þetta þriðji þurrkarinn sem Loðnuvinnslan kaupir á 7 árum.
Þá er búið að leggja af alla 4 þurrkaranna sem settir voru upp í verksmiðjunni upphafalega og þessir þrír eru með 30 % meiri afköst eldri þurrkarar.

Mynd: Friðrik Mar Guðmundsson. Gufuþurrkarinn.

Mynd: Friðrik Mar Guðmundsson. Rótorinn á þurrkaranum.
Ljósafell í 4 sæti í október af togurum hjá aflafréttum.
Samkvæmt aflafréttum þá endaði Ljósafell í 4 sæti af togurum í október. Virkilega vel gert.

Hér má sjá lokalista hjá aflafréttum.
Sæti | áður | Nafn | Heildarafli | Róðrar | Mesti afli | Höfn |
1 | 1 | Viðey RE 50 | 789.0 | 6 | 179.7 | Grundarfjörður, Reykjavík |
2 | 6 | Björgvin EA 311 | 700.6 | 6 | 153.1 | Dalvík |
3 | 2 | Drangey SK 2 | 680.8 | 5 | 193.7 | Sauðárkrókur |
4 | 12 | Ljósafell SU 70 | 635.9 | 5 | 130.0 | Fáskrúðsfjörður |
5 | 8 | Gullver NS 12 | 617.8 | 5 | 141.8 | Seyðisfjörður |
6 | 7 | Björgúlfur EA 312 | 614.2 | 4 | 224.2 | Dalvík |
7 | 19 | Sóley Sigurjóns GK 200 | 602.4 | 6 | 137.6 | Siglufjörður |
8 | 4 | Jóhanna Gísladóttir GK 357 | 590.4 | 11 | 86.7 | Djúpivogur, Grundarfjörður, Ísafjörður, Grindavík |
9 | 16 | Sirrý ÍS 36 | 576.6 | 6 | 113.9 | Bolungarvík |
10 | 11 | Kaldbakur EA 1 | 569.9 | 4 | 167.9 | Eskifjörður, Akureyri, Neskaupstaður |
11 | 10 | Málmey SK 1 | 565.2 | 4 | 177.7 | Sauðárkrókur |
12 | 9 | Þórunn Sveinsdóttir VE 401 | 548.3 | 4 | 142.5 | Vestmannaeyjar |
13 | 3 | Björg EA 7 | 548.2 | 4 | 167.4 | Akureyri, Dalvík |
14 | 15 | Vestmannaey VE 54 | 523.7 | 7 | 85.4 | Vestmannaeyjar, Neskaupstaður |
15 | 5 | Akurey AK 10 | 504.8 | 6 | 108.7 | Reykjavík, Grundarfjörður |
16 | 33 | Helga María RE 1 | 499.0 | 4 | 170.3 | Reykjavík |
17 | 13 | Skinney SF 20 | 457.7 | 6 | 113.6 | Hornafjörður |
18 | 21 | Páll Pálsson ÍS 102 | 444.9 | 5 | 117.3 | Ísafjörður |
19 | 14 | Þinganes SF 25 | 430.4 | 7 | 85.2 | Reykjavík, Grundarfjörður, Þorlákshöfn |
Ljósafell kom inn á mánudaginn með tæp 100 tonn.
Ljósafell kom inn á mánudaginn með tæp 100 tonn, Aflinn var 45 tonn Þorskur, 23 tonn Ýsa, 18 tonn Ufsi, 6 tonn Karfi og annar afli.
Frábær október mánuður hjá Sandfelli og Hafrafelli.
Frábær afli hjá Sandfelli og Hafrafelli í október og fengu samtals 532 tonn. Sandfell með samtals 283 tonn og Hafrafell með samtals 249 tonn.

Mynd: Þorgeir Baldursson.
Sæti | áður | Nafn | Heildarafli | Róðrar | Mesti afli | Höfn |
1 | 1 | Sandfell SU 75 | 283.4 | 21 | 28.4 | Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
2 | 2 | Hafrafell SU 65 | 249.1 | 17 | 21.8 | Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
3 | 5 | Indriði Kristins BA 751 | 242.8 | 13 | 24.0 | Vopnafjörður |
4 | 3 | Kristinn HU 812 | 237.3 | 25 | 12.8 | Arnarstapi, Ólafsvík |
5 | 4 | Kristján HF 100 | 225.5 | 14 | 23.1 | Neskaupstaður, Vopnafjörður |
6 | 8 | Tryggvi Eðvarðs SH 2 | 211.4 | 13 | 21.0 | Ólafsvík |
7 | 7 | Vigur SF 80 | 209.1 | 11 | 27.5 | Neskaupstaður |
8 | 9 | Stakkhamar SH 220 | 200.6 | 22 | 14.4 | Rif |
9 | 12 | Háey I ÞH 295 | 197.9 | 12 | 23.5 | Raufarhöfn, Húsavík, Dalvík |
10 | 10 | Særif SH 25 | 194.3 | 14 | 22.7 | Arnarstapi, Rif |
11 | 6 | Auður Vésteins SU 88 | 190.8 | 16 | 21.3 | Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
12 | 11 | Einar Guðnason ÍS 303 | 175.3 | 16 | 16.8 | Suðureyri |
13 | 14 | Fríða Dagmar ÍS 103 | 174.8 | 20 | 14.2 | Bolungarvík |
14 | 16 | Jónína Brynja ÍS 55 | 165.7 | 22 | 12.1 | Bolungarvík |
15 | 13 | Gísli Súrsson GK 8 | 161.7 | 15 | 20.4 | Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
16 | 15 | Gullhólmi SH 201 | 157.2 | 11 | 20.0 | Rif |
17 | 17 | Óli á Stað GK 99 | 133.5 | 20 | 9.5 | Siglufjörður, Dalvík |
18 | 18 | Sævík GK 757 | 117.9 | 18 | 11.1 | Skagaströnd |
19 | 20 | Hulda GK 17 | 99.8 | 14 | 9.1 |
Ljósafell kom inn í gærkvöldi með fullfermi 110 tonn.
Ljósafell kom inn í gærkvöldi með fullfermi 110 tonn. Aflinn er 50 tonn Þorskur, 30 tonn Ufsi, 15 tonn Ýsa, 10 tonn karfi og annar afli.
Skipið fer aftur út kl. 20 á mánudagskvöld.
Mikið unnist í öryggismálum
Búið er að bæta til muna allt öryggi á hafnarsvæði Loðnuvinnslunnar. Hófst sú vinna s.l vor undir stjórn öryggisstjóra LVF, Arnfríðar Eide, sem ásamt öryggisnefnd og stjórnendum gerðu ítarlega greiningu á hvar fyrirtækið gæti gert betur á þessu sviði.
Víðsvegar hafa verið settir upp umferðarspeglar, annars vegar þar sem blint var fyrir ökumenn og hins vegar á staði þar sem bílstjórar fá betri sýn við að bakka að byggingum þegar verið er að ferma og afferma. Mikið af yfirborðsmerkingum voru settar upp líkt og gangbrautir og gönguleiðir. Þá voru bílastæðin skilgreind betur sem og stopp merkingar. Einnig hafa varúðarskilti verið sett upp við hafnarsvæðið þar sem skírt er kveðið á um að óviðkomandi sé bannaður aðgangur. Eru þau aðvörunarorð höfð bæði á íslensku og ensku.
Fast við hafnarsvæði Loðnuvinnslunnar stendur Fosshótel Austfirðir og þeir ferðalangar sem gista það glæsilega hótel hafa verið gjarnir á að fá sér göngu á hafnarsvæðinu, enda margt forvitnilegt fyrir ókunnuga að sjá, um leið og menn gera sér ekki grein fyrir hættunum sem þar kunna að leynast. Nú þegar merkingar hafa verið settar upp láta gestir, sem og heimamenn, sér nægja að horfa yfir svæðið. Þá hefur óþarfa bílaumferð um svæðið nánast horfið. Allt vísbendingar um að fólk virðir merkingarnar og er það vel.
Starfsfólk er mjög ánægt með þessa vinnu og finnur árangurinn í vinnu sinni. Hægt er að aka lyfturum og öðrum tækjum um svæðið af meira öryggi.
Við fögnum því mjög að fólk virði merkingarnar og biðlum áfram til allra að gera slíkt hið sama. Öll viljum við koma heil heim eftir vinnudaginn, hvort heldur er á líkama eða sál.
Það er einnig frábært hvað stjórnendur og starfsfólk er jákvætt fyrir þeim öryggisráðstöfunum sem gerðar eru en slíkt auðveldar öryggisstjóra og öryggisnefnd mikið við innleiðingu öryggisferla og skapar ekki síður góða öryggismenningu í fyrirtækinu til framtíðar.
Undanfarin ár hefur töluverð vinna farið í að auka öryggi starfsfólks með því að áhættugreina hverja deild ásamt því að áhættugreina einstakar vélar aukalega. Í kjölfarið hefur slysum farið fækkandi og síðast liðið ár voru aðeins minniháttar atvik sem komu upp. Við höfum átt góða samvinnu við Vinnueftirlitið um hvað við getum gert betur og stóðst Loðnuvinnslan ítarlega úttekt sem fór fram s.l vor.
Við höldum ótrauð áfram, við erum á tánum og viljum gera enn betur. Því þegar kemur að öryggismálum er vísan aldrei of oft kveðin.




Sandfell og Hafrafell hafa fengið 343 tonn í október, komu með 40 tonn í gær.
Góður afli hja Sandfelli og Hafrafelli það sem af er október, þeir hafa fengið samtals 343 tonn. Sandfell 176 tonn og Hafrafell 167 tonn. Í gær komu þeir í land með 40 tonn eftir tvær lagnir, Sandfell 17 tonn og Hafrafell 23 tonn.


Myndir: Þorgeir Baldursson.
Ljósafell á landleið með 110 tonn.
Ljósafell er á landleið með fullfermi 110 tonn. Aflinn er 58 tonn Þorskur, 25 tonn Ufsi, 13 tonn Karfi, 10 tonn Ýsa og annar afli.

Mynd: Þorgeir Baldursson.