Sandfell

Sandfell landaði á þriðjudag 6,2 tonnum, tæpum 9 tonnum á miðvikudag og 6,5 tonnum í dag, fimmtudag. Aflanum hefur verið landað á Fiskmarkað á Skagaströnd og hefur aflinn að uppistöðu verið ýsa.

Sandfell

Sandfell landaði á Skagaströnd í gær, sunnudag. Aflinn var um 14 tonn eftir tvær lagnir, en í dag, mánudag, landar Sandfellið aftur, nú 9 tonnum og uppistaðan af því ýsa.

Hoffell

Hoffell er rétt að koma inn með um 200 tonn af makríl.

Sandfell

Sandfell landaði um 10 tonnum á Skagaströnd. Allt á fiskmarkað.

Ljósafell

Ljósafell er með um 100 tonn og landar í fyrramálið á Eskifirði. Allt á fiskmarkað. Brottför á þriðjudag kl 13:00

Sandfell

Sandfell landaði á Skagaströnd í gær. Aflinn var um 10 tonn og uppistaðan ýsa.

Ljósafell

Ljósafell er að landa á Fiskmarkaðinum á Eskifirði í dag. 86 tonn af blönduðum afla, mest þó þorskur, um 40 tonn. Brottför á morgun kl 15:00

Sandfell

Sandfell landaði á Skagaströnd í gær um 9 tonnum, uppistaðan ýsa. Tekið verður smá stopp fram á sunnudag.