Ljósafell

Ljósafell er komið inn með um 32 tonn eftir um sólarhring á veiðum. Uppistaðan er þorskur sem fer til vinnslu í frystihús LVF. Brottför aftur að löndun lokinni.

Sandfell

Sandfell kom inn í nótt með 13,5 tonn og er það að mestu þorskur sem fer til vinnslu í frystihúsi LVF. Unnið er við löndun.

Ljósafell

Ljósafell kom inn í nótt sökum verkfalls. Aflinn er um 56 tonn og uppistaðan þorskur til vinnslu í frystihúsi LVF. Beðið er með löndun úr skipinu meðan klárað er að landa og vinna afla úr Hoffelli og Sandfelli.

Hoffell

Hoffell kemur til löndunar í nótt með um 560 tonn af síld til söltunar.

Ljósafell

Ljósafell er komið til löndunar með fullfermi. Landað verður úr skipinu í dag, sunnudag. Brottför aftur á mánudag kl 17:00

Sandfell

Sandfell er á landleið með um 19 tonn eftir tvær lagnir, þar af er grálúða um 5 tonn.

Í október mánuði aflaði Sandfellið samtals um 246 tonn, og það sem af er nóvember hefur aflinn verið samtals um 53 tonn í 5 löndunum.

Hoffell

Hoffell er á landleið með um 500 tonn af ísl.síld. Fer aftur til sömu veiða að löndun lokinni.

Ljósafell

Ljósafell er að landa um 75 tonnum. Uppistaða aflans er þorskur sem fer til vinnslu í frystihúsi LVF. Skipið helur aftur til veiða á morgun, þriðjudag 01. nóv. kl 13:00

Hoffell

Hoffell er á landleið með um 250 tonn af síld. Verður í landi í fyrramálið og fer aftur til sömu veiða að löndun lokinni

Sandfell

Sandfell landaði tvisvar um helgina. Á laugardag var báturinn með 16 tonn og á sunnudag með 21 tonn.

Ljósafell

Ljósafell kemur til löndunar á Fáskrúðsfirði kl 13:00 í dag, mánudag. Þá hefur skipið lokið við sinn þátt í Haustralli Hafrannsóknarstofnunar, en skipið tók alls 179 togstöðvar á grunnslóð allt í krinugm landið. Brottför aftur á fimmtudag kl 13:00.