Fjórir loðnubátar með tæp 2.430 tonn.
Fjórir loðnubátara komu inn í kvöld með samtals 1.530 tonn í frystingu. Teigenes með100 tonn, Gunnar Langva með 800 tonn, Hargun með 630 tonn og Norderveg með 900 tonn.
Gott veður var í gær og í dag á miðunum eftir miklar brælur í 5 daga.
Góðir gestir
Loðnuvinnslan fékk skemmtilega heimsókn mánudaginn 13.febrúar s.l. Um er að ræða níu einstaklinga sem komu á vegum Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri, ásamt Herði Sævaldssyni lektor og Heiðari Þór Valtýssyni dósent. Voru erlendu gestirnir frá mismunandi löndum eins og Namibíu, Sierra Lione, Kenía, Grænhöfðaeyjum, Líberíu og El Salvador.
Tilgangur heimsóknarinnar var kynna sér starfsemi Loðnuvinnslunnar en gestirnir eiga það sameiginlegt að vera starfandi ýmist í sjávarútvegsráðuneytum eða fiskistofum þeirra landa sem þau eru fulltrúar fyrir.
Til er nokkuð sem kallast Sjávarútvegsskóli Unesco GRÓ og er byggt á grunni sem áður var kallað Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn er hluti af starfsemi sem kallast Þróunarsamvinnumiðstöðin, en það er sjálfstæð miðstöð um uppbyggingu færni og þekkingar í þróunarlöndum. Samkvæmt heimasíðu Hafrannsóknarstofnunnar er „meginviðfangsefni skólans að byggja upp færni og þekkingu meðal sérfræðinga á sviði sjávarútvegs og fiskeldis í þróunarlöndum og innan þeirra stofnanna og samtaka er þeir vinna í“.
Stærsti þátturinn í starfsemi skólans er sex mánaða nám fyrir sérfræðinga á sviði sjávarútvegs og fiskeldis í þróunarlöndum. Námið gengur út á að efla sérfræðingana faglega og búa þannig um hnútana að þeir geti haft áhrif í því starfsumhverfi sem þeir koma frá. Nám þetta er haldið á hverjum vetri.
Auðlindadeild Háskólans á Akureyri tók að sér menntun, þeirra níu einstaklinga sem áður voru nefndir, í fjóra mánuði af sex. Heimsókn á Austurland er hluti af þeirri menntun. Hörður Sævaldsson lektor við Auðlindadeildina sagði að sjávarútvegur á Íslandi væri framsækinn og byggði á tækni og að góð leið til mennta væri að nema með höndum, eyrum og augum. „Og þess vegna heimsækjum við fyrirtæki á borð við Loðnuvinnsluna“ sagði hann og bætti við að það væri svo dýrmætt hversu fyrirtæki í sjávarútvegi væru viljug til samvinnu. „Það er ekkert sjálfgefið að fólk gefi sér tíma til þess að taka á móti hópum eins og okkur og við kunnum afar vel að meta það“
Þar sem rekstur Sjávarútvegsskólans er hluti af þróunarframlagi Íslands þýðir það að þeir sem sækja námið koma frá löndum sem eru ekki eins framarlega í tækni og búnaði eins og sjávarútvegur á Íslandi. En nemendur eru sérfræðingar í sínum sviðum og stór þáttur námsins er að koma auga á þætti innan vinnslunnar sem þau geta tekið með sér heim og aðlagað að því sem þar er fyrir.
Loðnuvinnslan bauð gestunum fyrst í matarmikla sjávarréttasúpu á Café Sumarlínu og að því loknu var þeim fylgt í gegn um vinnsluna í Fram þar sem uppsjávarfrystihús Lvf er til húsa. Þar er tæknin við völd og allt gert til þess að hámarka gæði. Síðan var kynning á starfseminni þar sem farið var yfir rekstur og eignarhald.
Hörður sagði að nemendurnir hefðu verið alsæl með heimsóknina, þau kunnu vel að meta súpuna góðu, framreidda úr besta mögulega sjávarfangi og ekki síður með móttökurnar hjá stjórnendum Loðnuvinnslunnar. „Þetta var frábær heimsókn“ sagði Hörður „það var gaman og áhugavert að heyra sögu fyrirtækisins og það sköpuðust skemmtilegar umræður í hópnum, ekki síst eftir að heimsókninni var lokið“. Og Hörður sagði frá því að sú staðreynd að Loðnuvinnslan sé í eigu Kaupfélags, sem er síðan í eigu heimamanna, hafi vakið virkilega mikinn áhuga hjá fólkinu.
Eftir að hafa heimsótt fleiri sjávarútvegsfyrirtæki í Fjarðabyggð var för hópsins heitið á Sjóminjasafnið sem staðsett er á Eskifirði. Því eins og Hörður Sævaldsson lektor við Háskólann á Akureyri sagði svo réttileg: „ Það er líka mikilvægt að skoða fortíðina“.
BÓA
Ljósafell kom inn í gær með tæp 80 tonn.
Ljósafell kom inn í gær með tæp 80 tonn, aflinn var 40 tonn Þorskur, 21 tonn Karfi, 7 tonn Ýsa, 7 tonn Ufsi og annar afli. Leiðinlegt veður var í seinnihluta túrsins ,vel yfir 30 metrar á sek. Ljósafell fer út kl. 18,00 í dag
6 norskir bátar á leiðinni með 1.800 tonn af Loðnu.
Rav, Svanaug Elise, Harald Johan, Ligrunn, Senior og Ketlin koma í kvöld til Fáskrúðsfjarðar með 1.800 tonn af Loðnu. Byrjað verður að landa úr Rav kl. 4 í nótt. Loðnan fer í frystingu og í bræðslu. Aðeins 50 mílur eru í land af miðunum.
Norderveg kemur í dag með 270 tonn af Loðnu.
Norderveg kemur í dag með 270 tonn af Loðnu sem hann fékk í nótt þrátt fyrir brælu.
Norsk Loðnuskip á Fáskrúðsfirði.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Österbris kom í gærkvöld með 190 tonn af Loðnu.
Österbris kom í gærkvöld með 190 tonn af Loðnu sem fer til frystingar og bræðslu.
Ljósafell kom inn í gær með fullfermi eða 110 tonn.
Ljósafell kom inn í gær með fullfermi 110 tonn. Aflinn var 45 tonn Karfi, 25 tonn Ýsa, 15 tonn Þorskur, 15 tonn Utsi og annar afli. Mikil bræla er næstu daga og fer skipið út þegar veður batnar.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Smári skipstjóri
Hoffell kom í heimahöfn á Fáskrúðsfirði með tvö þúsund tonn af kolmunna aðfaranótt laugardagsins 28.janúar. Var þetta fyrsti kolmunna túr þessa nýja skips sem fékk nafn forvera síns sem átti marga slíka túra að baki. Þessi túr átti sér aðra sérstæðu að auki. Það var nýr skipstjóri í brúnni. Smári Einarsson hefur verið á sjó frá unga aldri. Hann byrjaði á Hoffelli Su 80 í október árið 2005. Var það að vísu annað skip en það sem ber nafnið núna en Smári hefur verið í áhöfn þriggja skipa með þessu fallega nafni. En sú skemmtilega hefð hefur skapast hjá Loðnuvinnslunni, líkt og áður hjá móðurfélagi þess Kaupfélaginu, að nefna fleyin eftir fjöllum sem standa vörð um Fáskrúðsfjörð.
Smári er 35 ára gamall og aðspurður sagði hann að hann hefði nú ekki endilega dreymt um að verða sjómaður þegar hann var lítill drengur, en einhvern veginn hefði það legið beint við þar sem sjómennska er stór atvinnugrein í fjölskyldunni. „Pabbi, afi og stjúpi minn voru sjómenn“ sagði Smári. Hann hóf nám í Tækniskólanum til þess að læra til skipstjórnar, stundaði hann námið með vinnu og lauk því árið 2020. Nú starfar hann sem fyrsti stýrimaður á Hoffelli sem hefur það í för með sér að leysa skipstjórann af þegar hann bregður sér frá.
Þegar Smári var inntur eftir því hvernig fyrsti skipstjóratúrinn hefði gengið sagði hann að það hefði gengið vel. „Ég var bara passlega stressaður og þetta var gaman“ bætti hann við. Veðrið var ekki að leika við sjófarendur þessa daga sem Hoffellið var í sínum fyrsta kolmunnatúr. „Það var leiðindaveður og bræla á köflum“ sagði Smári „en það gekk samt mjög vel að veiða og frábært að koma að landi með vel kældan og ferskan afla í þessu magni“. Smári sagði líka að samstarfsfélagarnir um borð hefðu tekið honum afar vel sem skipstjóra. „Við þekkjumst vel og höfum unnið lengi saman“ .
Þegar skip skiptir frá einum veiðum í aðra líkt og Hoffell gerði á dögunum þegar síldveiðum var hætt og stefnan tekin á kolmunna, þá þarf að skipta um veiðafæri. Smári skipstjóri byrjaði því á því að fara til Færeyja til þess að skipta út trolli og því næst var farið á miðinn.
BÓA
Selvag.
Selvag kom inn í dag með 80 tonn af Loðnu til frystingar og í bræðslu. Hann heitr núna Selvag út af nýbyggingunni sem þeir eru að smíða og kemur þá til með að heita Selvag Senior.
Mynd: óðinn Magnason.
Að sjálfsögðu fékk áhöfnin köku frá Loðnuvinnslunni.
Ljósafell kom inn í gær með 85 tonn.
Ljósafell kom inn í gær með 85 tonn, aflinn var 47 tonn Þorskur, 30 tonn Ýsa, 5 tonn Karfi og 3 tonn Utsi .
Mynd: Kjartan Reynisson.
Vendla kom með 300 tonn af Loðnu.
Fyrsta Loðna vertíðarinnar kom til Fáskrúðsfjarðar í dag þegar norska uppsjávarskipið Vendla kom með 300 tonn af Loðnu sem verður fryst fyrir Austur-Evrópu markað. Skipið fékk aflann um 50 mílur austur af Fáskrúðsfirði.
Að sjálfsögðu fékk áhöfn Vendlu köku um borð frá LVF.
Hoffell á landleið með 2.250 tonn af Kolmunna.
Hoffell er á landleið með 2.250 tonn af Kolmunna sem fékkst um 100 mílur suður af Færeyjum. Slæmt veður hefur verið á miðunum í þessum túr.
Þettta er fyrsta veiðiferð skipsins á Kolmunna eftir að Loðnuvinnslan keypti skipið í sumar. Veiðiferðin gekk vel.