Jólakveðja

Okkar bestu óskir um gleðilega jólahátið og farsælt komandi ár.
Þökkum fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Loðnuvinnslan hf.
Ljósafell
Ljósafell er nú að landa síðasta túr ársins. Aflinn er um 37 tonn og uppistaðan Þorskur. Skipið fer af stað á nýja árinu 2 janúar kl 00:01
Hoffell
Hoffell SU 80 er komið heim af kolmunnamiðum í Færeyjum. Aflinn er um 500 tonn eftir talsverðan brælutúr. Skipið er nú komið í jólastopp, en fer aftur til kolmunnaveiða eins fljótt og hægt er eftir áramót.
Ljósafell
Ljósafell er nú að landa. Aflinn er um 55 tonn, nánast allt þorskur til vinnslu í frystihús. Skipið heldur aftur til veiða þegar veður skánar.
Hoffell II
Hoffell SU 802 er komið úr gulldeplultúr. Skipið hélt til leitar þann 7. desember og kom inn í nótt. Lítið var að sjá af gulldeplu, en veður var óhagstætt nánast allan tímann.
Ljósafell
Ljósafell er nú að landa 20 tonnum, mest þorski. Skipið heldur aftur til veiða þegar brælunni slotar.
Ljósafell
Ljósafell er nú að landa á Fáskrúðsfirði í fyrsta skipti í nokkurn tíma. Aflinn er um 76 tonn og uppistaðan þorskur. Skipið heldur aftur á veiðar á morgun, þriðjudaginn 9. des kl 16:00.
Ljósafell
Ljósafell er komið inn til Eskifjarðar til löndunar. Aflinn er um 47 tonn, blandaður afli. Vegna brælu er ekki búið að ákveða brottför.
Hoffell
Hoffell verður í löndun í fyrramálið með síðasta fram síldarvertíðar. Aflinn er um 550 tonn og fer hann að mestu í söltun. Framundan er svo einn kolmunnatúr í Færeysku lögsöguna að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell er nú að landa um 540 tonnum af síld.
Skipið fer nú í síðasta túr vertíðarinnar að löndun lokinni.
Ljósafell
Ljósafell er nú að landa á Eskifirði. Aflinn er um 42 tonn og uppistaðan karfi. Skipið heldur aftur til veiða á morgun, miðvikudag 26 nóvember kl 16:00
Hoffell
Hoffell er væntanlegt í nótt með um 550 tonn af síld til söltunar. Skipið heldur aftur til sömu veiða að löndun lokinni.