Ljósafell

Ljósafell kom til löndunar í gær með um 60 tonn af blönduðum afla. Skipið heldur aftur á veiðar í dag, þriðjudag, kl 13:00.

Ljósafell

Ljósafell kom til löndunar í morgunn með um 75 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, 35 tonn, auk ýsu, karfa ofl.

Hoffell

Hoffell fór til veiða í gærkvöld eftir að hafa landað um 1000 tonnum af makríl.

Línubátar

Línubátarnir sem leggja upp hjá LVF voru með sæmilegan afla í Júlí. Sandfell var með 200 tonn og endaði í efsta sæti í sínum stærðarflokki. Hafrafell var með 160 tonn og endaði í öðru sæti á eftir Sandfelli. Alls komust átta bátar yfir 100 tonn í júlí í flokki báta 21...

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa um 75 tonnum af blönduðum afla. Þorskur 30 tonn, ýsa 18 tonn og karfi 18 tonn auk annarra tegunda. Skipið heldur aftur til veiða á föstudag.

Hoffell á landleið

Hoffell er á landleið með 950 tonn af makríl og verður í fyrramálið.  Hoffell fór út á fimmtudagskvöldið frá Fáskrúðsfirði og stoppaði aðeins 36 tíma á miðunum en það var sólarhringssigling á miðin.