Gleðilegt nýtt ár 2005

Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslan h/f óska Austfirðingum, svo og landsmönnum öllum, farsældar á nýju ári með þakklæti fyrir samskiptin á liðnum árum.

Firmakeppni í knattspyrnu

Firmakeppni Hótels Bjargs og Leiknis í innanhússknattspyrnu var haldin í 8. sinn 30. desember s.l. og fór lið salthúss og frystihúss LVF með sigur að hólmi. Sigurvegararnir fengu að launum pítsaveislu á Hótel Bjargi og farandgrip mikinn til varðveislu, sem LVF gaf á...

Jólakveðja

Óskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Kærar þakkir fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslan h/f

Glettingur

Glettingur, tímarit um austfirsk málefni, 14. árg. 3. tbl. 2004 er kominn út. Ritstjóri Glettings að þessu sinni er Magnús Stefánsson frá Berunesi. Meðal efnis í blaðinu er viðtal sem Magnús átti við Gísla Jónatansson um 70 ára starfsemi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga....

Kolmunni

Bergur VE 44 landaði í nótt um 500 tonnum af kolmunna hjá LVF.

Kolmunni

Bergur VE 44 er að landa um 300 tonnum af kolmunna hjá LVF, en skipið kom inn til Fáskrúðsfjarðar vegna brælu.