Norskir bátar

Um helgina lönduðu tveir norskir bátar kolmunna til bræðslu hjá Loðnuvinnslunni hf. Havstal landaðu tæpum 2000 tonnum og Selvog Senior með um 1750 tonn. Síðan bíður Norski báturinn Steinsund löndunar á kolmunna meðan verið er að landa bolfiski úr hinum rammíslenska togara Ljósafelli.

Norskir bátar

Nú er verið að landa kolmunna úr Norska skipinu Havsnurp. Áður höfðu þrír Norskir bátar landað kolmunna yfir páskana á Fáskrúðsfirði. Þetta voru Vestviking með 1.629 tonn, Manon með 1.583 tonn og Steinsund með 1.742 tonn.

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa og er aflinn um 82 tonn, uppistaðan þorskur. Skipið heldur aftur til veiða á morgunn, miðvikudag 4. apríl kl 13:00

Loðnuvertíðin

Þá er loðnuvertíðin að verða búin. Alls var tekið á móti um 30 þúsund tonnum hjá Loðnuvinnslunni hf og af því var um 21 þúsunn tonn af erlendum bátum. Vertíðin var í lengra lagi því fyrsti báturinn, Endre Dyroy landaði þann 21. janúar og síðasti farmurinn kom af Hoffelli 23. mars. Lokið var við að frysta hrogn á sunnudaginn 25. mars, en ennþá er verið að bræða í fiskimjöslverksmiðjunni. Á myndunum má sjá Norska skipið Knester og Færeyska skipið Júpíter sem báðir lönduðu hjá Loðnuvinnslunni á vertíðinni.

Síðasti loðnufarmurinn

Hoffell hefur nú lokið við að veiða allan loðnukvótann, samtals 8.600 tonn.   Skipið er á heimleið með 900 tonn sem var síðasti skammturinn til að fylla uppí kvótann.  Að sögn Bergs Einarssonar skipstjóra var aflinn veiddur í Hrútafjarðarál, sem eru ekki algeng mið fyrir loðnuveiðar, frekar sjaldgæf reyndar.  Loðnan er falleg, u.þ.b. 65 % hrygnur og fer öll til hrognatöku hjá Loðnuvinnslunni.  Aðspurður sagði Bergur að veiðin hefði gengið mjög vel, spegilslétt haf, sól og blíða.  Og þegar hann var inntur eftir ástandi á loðnumiðunum svaraði hann því til að það væri „skömm að þessi vertíð væri búin, því nóg væri af loðnu á miðunum enn“.  En næg eru verkefnin fyrir Hoffell. Nú þegar loðnuvertíðin er yfirstaðin verður farið í að skipta um veiðafæri á skipinu, nótinni sem loðnan er veidd í er skipt út fyrir flottroll til þess að veiða Kolmunna sem, ef að líkum lætur, mun fylla lestir Hoffellsins áður en langt um líður.

BÓA

Hoffell

Hoffell er komið til löndunar með um 1300 tonn af loðnu til hrognatöku.

Mjölskip

Flutningaskipið Zeus lestaði um 1500 tonn af mjöli í blíðunni á Fáskrúðsfirði í gær.

Sandfell

Sandfell er nú að veiðum fyrir sunnan land og hefur aflast þokkalega. Afli helgarinnar var 32,5 tonn í tveim róðrum. Fiskurinn var seldur á fiskmarkaði.

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa um 92 tonnum á Eskifirði. Uppistaða aflans er karfi og fer fiskurinn að mestu á fiskmarkað. Brottför skipsins aftur á morgunn 19. mars kl 14:00

Ljósafell á ralli

Steinninn stóri. Ljósmynd: Bergsteinn Ingólfsson

Síðast liðnar tvær vikur hefur Ljósafell verið á svo kölluðu Togararalli. Þá er skipið í þjónustu Hafrannsóknarstofnunnar og fer um fiskimiðin og veiðir en með svolítið öðru sniði en venjulega.   Í verkefni sem þessu er farið eftir fyrirfram ákveðnu skipulagi á fiskimið umhverfis landið sem kallast stöðvar. Ljósafellið fór á 145 stöðvar og togaði í um eina klukkustund á hverri stöð. Þegar aflinn kemur síðan  um borð taka við venjubundin störf sjómannanna þar sem fiskurinn er blóðgaður en síðan taka starfsmenn Hafrannsóknarstofnunnar við(sem að þessu sinni voru sjö talsins)  og gera allskyns mælingar á fiskunum.  Þeir vigta og mæla og aldursgreina fiskinn með því að skoða á honum kvarnirnar. Það kallast að kvarna fisk.

Hjálmar Sigurjónsson var skipstjóri á Ljósfellinu í þessum túr, sem tók tvær vikur með einni millilöndun, og sagði Hjálmar að allt hefði gengi vel. Veðrið lék við sjófarendur og veiðin gekk vel.  Eftir túrinn var aflinn kominn í 170 til 180 tonn sem fór allur á markað.   Þegar Hjálmar var inntur eftir því hvort að ekki kæmu margir furðufiskar upp með trollinu þegar verið væri að draga út um allt sagði hann að þeir læddust nú alltaf með en sjálfur sæi hann nú ekki alla fiska sem kæmu um borð frá sinni vinnustöð í brúnni. En Hjálmar hefur verið til sjós lengi og man eftir að hafa fengið óvæntan afla eins og eitt sinn þegar veiða átti ýsu komu 7 tonn af urrara upp með trollinu og í annað sinn komu 10 tonn af háfi öllum að óvörum.  Hvoru tveggja tegundir sem eru ekki algengur togarfiskur. En í þessu nýafstaðna ralli kom líka óvæntur “afli”.  Með trollinu kom upp það stærsta grjót sem þeir Ljósafellsmenn höfðu nokkru sinni séð um borð í skipi. Um það voru þeir allir sammála.  Hjálmar sagði að ótrúlegt hefði verið að trollið hefði haldið og dró þá ályktun að grjótið hefði komið í trollið alveg í lokinn á drættinum.  “Ef trollið hefði dregið þetta grjót eftir botninum hefði komið gat, um það er ég alveg viss” sagði Hálmar.  Var grjótið svo stórt að notast var við spilið til að koma því aftur í sjóinn þar sem kraninn um borð tekur “bara” rúmlega 4 tonn.

Já, það býr margt í hafinu.

BÓA.

 

Hoffell var 6 tíma að fylla við Tjörnes

Hoffell var að koma til hafnar með 1400 tonn af loðnu. Var þessi veiðitúr vel heppnaður í alla staði þar sem að hann tók aðeins um 35 klukkustundir. Að sögn Bergs Einarssonar  skipstjóra var aflinn fenginn  með þremur köstum út af Tjörnesi.  “Loðnan er fín og full af hrognum en 70% af aflanum er kerling” sagði Bergur og bætti kankvís við: “ég var ekkert að eltast við karlana”.  Úti fyrir Tjörnesinu skein sólin og veðrið var gott svo að þessi stutti en fengsæli túr var í alla staði afbragðs góður.

BÓA

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa á Eskifirði. Aflinn er um 50 tonn. Þorskurinn kemur til vinnslu í frystihús LVF en annað á fiskmarkað. Skipið kemur svo yfir á Fáskrúðsfjörð til veiðarfæraskipta, því næsta verkefni skipsins er árlegt „Togararall“ fyrir Hafrannsóknarstofnun. Ljósafell byrjar í því á mánudag.