Starfsmannafélagið á faraldsfæti
Um nýliðna helgi fór Starfsmannafélag Loðnuvinnslunnar til Gdansk í Póllandi. Flogið var frá Egilsstöðum fimmtudaginn 25.október og heim aftur mánudaginn 29.október. Voru um það bil 90 manns með í för, félagsmenn og makar. Gdansk tók vel á móti ferðalöngum, veðrið var þokkalegt haustveður og borgin heilsaði hlýlega.
Hjónin Kristín Hanna Hauksdóttir og Hjálmar Heimisson eru bæði í Starfsmannafélaginu og að auki er Kristín Hanna í stjórn Starfsmannafélagsins og kom að skipulagningu og undirbúiningi fararinnar. Aðspurð sögðu Kristín Hanna og Hjálmar að þetta væri fyrsta ferðin þeirra til Póllands og það hefði komið þeim skemmtilega á óvart hversu hrein og falleg borgin reyndist vera. Þau höfðu orð á því hvað byggingastíll borgarinnar væri fallegur og sér í lagi í gamla bænum þar sem falleg og reisuleg hús umlykja torgið. “Við fórum líka í kirkjuna Oliwa þar sem leikið var á orgelið og það var rosalega flott” sögðu þau Kristín Hanna og Hjálmar. En orgelið sem um ræðir skartar tæplega átta þúsund pípum ýmist úr tini eða tré, þar sem minnsta pípan er á stærð við eldspýtustokk en sú stærsta er 10 metra löng.
Steinþór Pétursson og Guðný Elísdóttir voru í sinni fyrstu ferð með Starfsmannafélaginu og þegar greinarhöfundur króaði þau af við morgunverðarborðið tóku þau vel í stutt spjall. “Þetta er búið að vera góð ferð” sögðu þau hjónin og bættu því við að þau hefðu komið með “galopinn hugann” því þau hefðu ekki haft neinar fyrir fram ákveðnar hugmyndir um Pólland. Þau höfðu einnig orð á því að borgar umhverfið allt væri vinalega og viðmót heimamanna huggulegt. Þegar þau Guðný og Steinþór voru innt eftir því hvort að eitthvað hefði staðið uppúr í ferðnni nefndu þau safnið um seinni heimstyrjöldina (Museum of the Second World War – Muzeum II Wonjy Swiatowej) sem er á heimsmælikvarða sambærilegra safna, eftir því sem ferðamannahandbækur upplýsa. “Svo höfum við haft það eins og fólk gerir gjarnan í útlöndum, gengið um götur, kíkt í búðir og borðað mikið af góðum mat” sögðu þau Steinþór og Guðný.
Á sunnudagskvöldinu bauð Loðnuvinnslan öllum í mat. Veitingahúsið sem varð fyrir valinu var í fallegu gömlu húsi og þar var boðið uppá góðan mat og afar fallega fram borin. Síðan var tækifæri á mánudagsmorgni til að hlaupa í verslanir og sækja það sem uppá vantaði, fá sér gönguferð í bæinn, setjast á veitingahús eða bara kúra frameftir áður en haldið var heim á leið eftir vel heppnaða ferð til Gdansk í Póllandi.
BÓA
Heilsufarsskoðanir
Undanfarna tvo daga hafa staðið yfir heilsufarsskoðanir fyrir starfsfólk Loðnuvinnslunnar. Er það fyrirtækið Liðsemd, sem er í eigu Sonju Gísladóttur hjúkrunarfræðings, sem hefur framkvæmt skoðanirnar. „Heilsufarsskoðununum skiptum við í tvennt, þ.e. skoðun fyrir starfsfólk sem er 40 ára og eldra og fer sú skoðun annars vegar fram hjá hjúkrunarfræðingi sem sér, meðal annars, um mælingar á blóðþrýstingi, blóðsykri, kólesteróli og heildar blóðmagni í líkamanum og hins vegar hjá lækni sem athugar með heyrn og sjón, bregður hlustarpípu að brjósi og athugar með stoðkerfi. Að auki svarar fólk spurningarlista þar sem spurt er um andlega og líkamlega líðan. Að skoðun lokinni fær fólk ráðleggingar í samræmi við niðurstöðu skoðanna ef við á“ svaraði Sonja aðspurð um framkvæmd heilsufarsskoðanna. Síðan er boðið uppá skoðun fyrir starfsfólk 40 ára og yngra og er sú þjónusta framkvæmd eingöngu af hjúkrunarfræðingi þar sem algengt er að yngra fólk sé heilsuhraustara en þeir sem eldi eru.
Liðsemd bíður uppá allskyns þjónustu er tengist heilsu og vinnuverndarmálum. „Ég tek að mér allkyns verkefni sem tengjast heilsu“ segir Sonja „Ég bíð uppá mismunandi heilsufarsskoðanir, ýmist er um almennar skoðanir að ræða sem krefjast aðeins aðkomu hjúkrunarfæðings eða ýtarlegri skoðanir sem krefjast aðkomu bæði hjúkrnunarfæðings og læknis og fæ ég þá lækni til liðs við mig og að þessu sinni var það Fjölnir Guðmannsson sem vann með mér að skoðunum á starfsfólki Loðnuvinnslunnar. Svo bíð ég uppá bólusetningar og skyndihjálpar námskeið“ bætti Sonja við.
Til gamans má geta þess að Fjölnir Guðmannsson er ættaður frá Brimnesi við Fáskrúðsfjörð.
Heilsufarsskoðanir fyrir 40 ára og yngri fara svo fram á næstu vikum þannig að allt starfsfólk Loðnuvinnslunnar, sem þiggur boð um skoðun, ætti að vera búið að fá upplýsingar um heilsufar sitt fyrir jól.
BÓA
Góðir gestir í kaffi
„Sælt er að eiga sumarfrí
sveimandi út um borg og bí
syngjandi glaður aka í
óbyggðaferð í hópi“.
Þessar textalínur eftir Ómar Ragnarsson komu upp í hugann þegar greinarhöfundur sá myndir af stæðilegum jeppum félaga í Ferðaklúbbnum 4X4 á Austurlandi en laugardaginn 13.október s.l. bauð Ferðaklúbburinn skjólstæðingum Félagsþjónustunnar í Fjarðabyggð og á Héraði í árlega jeppaferð. Voru 8 bílar með í ferðinni sem fluttu um 30 ánægða og syngjandi glaða farþega. Er ferðalag af þessu tagi árlegur viðburður. “ Þetta eru alltaf mjög skemmtilegar og sama fólkið kemur aftur og aftur“ sagði Sigurður Kári Samúlesson skipuleggjandi ferðarinnar í ár, og bætti því við að þetta hefði líklegast verið tíunda ferðin sem Ferðaklúbburinn 4X4 á Austurlandi bíður einstaklingum sem ekki eiga þess kost sjálfir að aka stórum breyttum jeppum. „Við ókum sem leið lá frá Egilsstöðum inn Skriðdalinn, tókum þá Þórdalsheiðina niður í Reyðarfjörð. Þaðan ókum við svo á Fáskrúðsfjörð þar sem öllum hópnum var boðið í kaffi á vegum Loðnuvinnslunnar. Veitingarnar voru hrikalega flottar og allir voru mjög ánægðir“ sagði Sigurður Kári. Ferðalangarnir fengu dásamlegt veður til fararinnar sem gerir upplifunina enn betri og sagði Sigurður Kári að allir hefðu verið í skýjunum að ferðalokum.
BÓA
Ljósafell
Hoffell
Gjafir til Uppsala
Í dag færði Kaupfélagið dvalarheimilinu Uppsölum góðar gjafir. Annars vegar var um að ræða svo kallaðan blöðruskanna sem notaður er til þess að óma þvagblöðrur í þeim tilgangi að kanna hvort að þær tæmist við þvaglát, og hins vegar gasgrill. Elín Hjaltalín Jóhannesdóttir hjúkrunastjóri og Ragnar Sigurðsson framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð tóku á móti gjöfunum fyrir hönd Uppsala. Aðspurð um mikilvægi þess fyrir Uppsali að eiga blöðruskanna svaraði Elín að það væri afar mikilvægt. Þannig vill nú til að þegar mannfólk eldist gengur oft á tíðum erfiðlega að tæma þvagblöðruna og eykst þá hættan við blöðrubólgu og aðra erfiðleika sem geta valdið alvarlegum veikindum. Áður þurfti að senda heimilisfólk á Neskaupsstað til þess að gangast undir þessa einföldu ómun, og er það heilmikil fyrirhöfn fyrir þá sem eru orðnir ferðalúnir, og þess vegna sé það afar mikilvægt að tækið sé fyrir hendi hér heima.
Ragnar þakkaði Kaupfélaginu kærlega fyrir góðar gjafir og stuðning í gegnum árin, hann sagði það ómetanlegt fyrir Uppsali að eiga svo góðan bakhjarl sem Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga hefur reynst. Þá hafði hann orð á því að þó svo haustið væri komið og vetur á næsta leiti væri ekki úr vegi að grilla eitthvað góðgæti við tækifæri en var þess fullviss að grillið kæmi að góðum notum næsta sumar.
Að lokum var heimilisfólki og gestum boðið uppá kaffi og meðlæti til þess að fagna þessum góðu gjöfum.
BÓA
Ljósafell
Hoffell aflahæst á makríl
Hoffell er á landleið með tæp 700 tonn af makríl. Þegar þeim afla hefur verið landað hefur Hoffell komið með 10.000 tonn að landi og er þar með aflahæst íslenskra skipa á sömu veiðum. Bergur Einarsson skipstjóri kvaðst aðspurður vera þakklátur fyrir góða vertíð og sagði ástæðu velgenginnar vera sú að vinnslan í landi og veiðarnar hefðu gengið vel og einnig að veðrið hefði verið afar hagstætt.
Næst fer Hoffell á síldveiðar og því næst tekur við kolmunna veiði.
Hoffell verður í heimahöfn á Fáskrúðsfirði um kl. 01:00 í nótt.
BÓA
Ljósafell
Kaupfélagið gefur kastala
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga færði Fjölskyldugarðinum á Fáskrúðsfirði kastala að gjöf. Um er að ræða leiktæki fyrir börn frá eins árs aldri og uppúr. Í honum er hægt að klifra, ganga yfir hengibrú og renna sér, auk margra annarra hluta sem hugmyndaríkt fólk á öllum aldri á vafalaust eftir að nýta sér. Er um all veglega gjöf að ræða þar sem slíkur kastali kostar rúmlega 1.8 milljónir króna en Kaupfélagið hefur staðið dyggilega við bakið á Áhugahópnum um Fjölskyldugarð þar sem það hefur áður gefið 1.5 milljónir í hoppudýnu sem gengur undir nafninu Ærslabelgur. Hrefna Eyþórsdóttir talskona Áhugahópsins tók á móti kastalanum þegar hann var afhentur með formlegum hætti á vindasömu en björtu síðdegi og þakkaði hún fyrir gjöfina og sagði að Fjölskyldugarðurinn væri ekki orðinn svona ríkur af leiktækjum ef ekki væri fyrir tilstilli Kaupfélagsins þó þess beri að halda til haga að mörg fyrirtæki, félagasamtök, sjóðir og einstaklingar hafa lagt uppbyggingunni lið.
BÓA