Ljósafell með samtals 130 tonn síðustu fimm daga.
Ljósafell kom inn í dag með 95 tonn og áður hafði það millilandað sl. fimmtudag 35 tonnum. Aflinn var að mestu Þorskur og Ýsa.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Hafrafell með aflamet.
Hafrafell var aflahæst króksbáta með samtals 2.509 tonn á fiskveiðiárinu 2022/202.
200.000 tonn hjá Ljósafelli
Ljósafell Su 70 hefur átt sviðið að undanförnu. Ástæða þess er mörgum kunn, en hún er sú að skipið hefur verið í 50 ár við veiðar, og ekkert sem bendir til þess að það sé að fara að breytast á næstunni.
Ljósafell hefur verið aflasælt og áhafnir síðustu fimm áratugina hafa gengið um skipið af virðingu og natni og útgerð þess hefur séð til þess að það hefur fengið reglulega yfirhalningu.
Þegar skipið hélt til veiða fimmtudaginn 19.október sýndu tölur að heildaraflinn sem það hafði dregið úr sjó sló í 200.000 tonn, er hér átt við óslægðan fisk. Til gamans má geta þess að þegar Ljósfell var 25 ára þá var heildaraflinn 86.000 tonn, þannig að síðari hluti áranna 50 hafa verið heldur fengsælli. Eflaust mætti tala eitthvað um veiðiheimildir og slíkt í þessu samhengi en það verður ekki gert að sinni.
Ólafur Helgi Gunnarsson var á Ljósafelli í fjóra áratugi, lengst af sem skipstjóri og á hann því sinn hlut í öllum þessum 200.000 tonnum en hann var snöggur upp á lagið og sagði ákveðin: „Svona lagað er bara gert með góðum mannskap“. Og svo bætti hann því við að allt sem viðkæmi þessu skipi hefði verið, og væri enn, gott fyrir samfélagið.
Það eru mikil verðmæti í fiski, enda herramanns matur, og ætla má að aflaverðmæti allra þessara tonna séu á bilinu 50 til 60 milljarðar á núvirði.
Ólafur Helgi fyrrverandi skipstjóri og Hjálmar Sigurjónsson núverandi skipstjóri héldu upp á tímamótin með öðrum áhafnarmeðlimum og gestum. „Gott er að borða gulrótina“ segir í söngtexta einum og mun það rétt vera en það er líka gott að borða köku, sér í lagi í góðum félagsskap og af góðu tilefni og það var gert í borðsalnum á Ljósafellinu þegar Loðnuvinnslan bauð upp á köku, fallega skreytta með mynd af Ljósafelli og afar bragðgóða.
„Þetta er gott skip“ sagði Ólafur Helgi og bætti við: „það mun ekki endast að eilífu, en það á nóg eftir enn“. Og ef að líkum lætur munu koma fleiri tímamót til þess að gleðjast yfir.
BÓA
Þær eru bæði fallegar og góðar kökurnar frá Sumarlínu. Ljósmynd: Friðrik Mar
Hjálmar Sigurjónsson og Ólafur Helgi Gunnarsson hjálpast að við að skera kökubita handa gestum og gangandi. Ljósmynd: Friðrik Mar
Ferð til Sikileyjar
Starfsmannafélag Loðnuvinnslunnar er öflugt félag sem stendur fyrir skemmtilegum viðburðum fyrir félagsfólk og fjölskyldur þeirra. Síðasta útspil félagsins mætti með réttu kalla Grand, því að stór hópur starfsfólks LVF ásamt mökum fór í 10 daga ferð til ítölsku eyjarinnar Sikiley. Töldu ferðalangar 129 sálir og var þetta því fjölmennasta ferð starfsmannafélagsins til þessa. Flogið var frá Egilsstöðum þann 6.október til Catania á Sikiley, en það er næst stærsta borg eyjarinnar og er við austurströndina.
Fyrstu tvær næturnar var gist á hóteli í Catania og síðan fór hópurinn á Unahotels Naxos Beach Sicilia sem er lúxus hótel samstæði sem stendur líka við austurströndina en nokkuð norðar.
Bryndís Magnúsdóttir launafulltrúi er í stjórn starfsmannafélagsins og sagði hún að Ítalía
hefði orðið fyrir valinu því þar væri gott veður og góður matur auk menningar og lista, eitthvað fyrir alla. “Við vorum nokkuð lengi að negla niður ferð því það voru erfiðleikar við að fá leiguvél. Einnig var erfitt að finna stór hótel á Ítalíu sem eru líka nálægt miðbæ” sagði
Bryndís og bætti því við að fararstjórarnir tveir á vegum Kompaníferða hefðu verið mjög
fínir. “Annar af þeim var með okkur í Budva í Svartfjallalandi svo að hann er nánast orðinn
einn af hópnum”.
Bryndís hóf störf hjá Loðnuvinnslunni í júní 2021 og var þetta þriðja ferðin hennar með
starfsmannafélaginu og sagði hún að þessar ferðir hafi gert mikið fyrir sig persónulega. “Ég
er alltaf að kynnast samstarfsfólki mínu betur og betur og svo er það kærkomið að fá
svona langt frí og góða hvíld með eiginmanninum” sagði Bryndís.
Á Sikiley hafa geisað skógareldar um nokkurt skeið en það truflaði ekki ferðamenn að þessu
sinni enda innfæddir alvanir að glíma við slíkan vanda og hafa góða stjórn á öllum hlutum í
þessum efnum. Einhverjir sáu þyrlu sækja vatn við ströndina til þess að sleppa á eldana og þóttu það áhugverð sjón enda erum við Íslendingar ekki óvön því að nota þyrlur til hjálpar- og björgunarstarfa.
Óli Róbert er leiðsögumaður og annar tveggja sem sá um hópinn í ferðinni til eyjarinnar fögru í suðri. Hann Óli Róbert átti varla orð til þess að lýsa ánægju sinni með hópinn. „Þetta var frábær upplifun í alla staði, ég held svei mér að þetta hafi verið besti hópur sem ég hef verið með á ferðum mínum“ sagði leiðsögumaðurinn og hafði orð á því að allir hefðu verið svo jákvæðir og skemmtilegir.
Hjálmar Sigurjónsson skipstjóri á Ljósafelli var einnig í þessari ferð. Eins og mörgum er
kunnugt þá slasaðist Hjálmar illa á fæti í snjósleðaslysi þann 4.mars 2022 og hefur staðið í
ströngu með fótinn allar götur síðan. Hann hefur gengið í gegn um margar aðgerðir og hefur
endurhæfing verið hans helsta verkefni síðustu misseri. Er ferðin til Sikiley fyrsta ferðin eftir
slysið sem hann treystir sér í. Sagði Hjálmar aðspurður að ferðin hefði verið meiriháttar. “Það
var svo gott veður og hlýtt og hlýindi fara mikið betur í skrokkinn á mér heldur en kuldinn
hérna heima” sagði Hjálmar og var sáttur við afrek sín á ferðalaginu. ´”Ég gekk á hverjum
degi og styrkti þar með fótinn og svo nutum við hjónin bara lífsins, lágum í sólinni og syntum
í sjónum”. Glögglega mátti heyra á Hjálmari að ferðin hafi verið kærkomin og þrátt fyrir
eymsli í baki sem hann telur vera eftir setuna í flugvélinni og alla hreyfinguna í sólinni þá hafi
það verið langþráð að komst úr daglegu rútínunni.
Eðvarð Þór Grétarsson er sjómaður á Ljósafellinu og var þetta fyrsta ferðin hans með starfsmannafélaginu og því var fyrsta spurning til hans nokkuð fyrirsjáanleg: Hvernig var ferðin? Og hann svaraði um hæl: „Ferðin var í alla staði frábær, og það var augljóst að mikil vinna hefur verið lögð í að skapa sem mesta ánægju fyrir fólkið, og á stjórn starfsmannafélagsins mikið hrós skilið fyrir skipulagningu og alla þá vinnu sem þau lögðu á sig“. Eddi ( Eðvarð) sagði að hann væri búinn að vera á Ljósafellinu í rúm 5 ár og í þessari fyrstu ferð þeirra hjóna hafi hann fljótt komið auga á hversu mikil vinátta og samheldni einkenni starfsmannahóp LVF. „ Fyrirtækið bauð til kvöldverðar á frábærum veitingastað niður við sjó á Naxos ströndini, það var dásamlegt kvöld og erum við gríðarlega þakklát fyrir. Einnig fór áhöfn Ljósafells saman til kvöldverðar og þar tókst einnig mjög vel til, og þaðan fór enginn svangur, enda maturinn góður og hópurinn en betri“ sagði Eddi. Að gista á tveimur mismunandi stöðum gerði ferðina ögn fjölbreyttari þótti Edda og sagði hann líka að veðrið hefði verið alveg einstakt allan tímann, hlýtt og milt og nánast sífellt logn. „Það kom eingöngu rigning síðasta daginn, sem var ansi heppilegt“.En það mun hafa rignt á leið hópsin út á flugvöll. Sikiley skældi ofurlítið við brottförina. Inntur eftir því í hvað hann hefði notað daga sína í suðuhöfum sagði hann að þeir hefðu farið töluvert í að liggja á sólbekkjum, spjalla við fólk eða ganga um svæðið og skoða sig um. Rétt eins og fólk gerir í ferðum sem þessum.
„Ég fór ásamt góðum hópi í jeppaferð upp í 1800 metra hæð í hlíðum Etnu, sem er virkasta eldfjall í Evrópu, mér fannst þetta mjög áhugavert og fræðandi ferðalag. Kvöldin voru svo nýtt í spjall og spil með góðu fólki“ sagði Eddi og bætti við: „Fyrir mig persónulega fannst mér hápunktur ferðarinnar vera næst síðasta daginn þegar ég leigði mér vespu og ók á henni upp í þorp sem heitir Castelmola og er byggt uppi á fjallstoppi. Það er eitthvað einstakt við það að vera einn á vespu að þvælast um. Ég mæli með því“. Eddi sagði líka að það hefði verið mikil og góð upplifunin að kynnast öllu þessu dásamlega fólki sem starfar hjá LVF og samveran hefði verið algerlega frábær. „Við hjónin munum ekki láta okkur vanta í komandi ferðir á vegum starfsmannafélagsins“ sagði glaðbeittur Eddi að lokum.
Elvar Óskarsson er stjórnarformaður Loðnuvinnslunnar og einn af þeim fjölmörgu sem skemmtu sér á Sikiley. Hann var snöggur til svars þegar hann var spurður út í sína upplifun. „Þessi ferð var í alla staði frábær. Það er gaman að heyra hvað fólk skemmti sér vel og naut tímans þarna úti. Þetta er fallegt svæði að skoða, mikil saga og svo skemmdi það ekki að veðrið lék við okkur allan tímann.
Sikiley er áfangastaður ferðamanna, sem þýðir að ótal margt er hægt að gera sér til gamans og dægrastyttingar. Margir fóru í ferðir til þess að kynnast landinu og þjóðinni. T.a.m fór hópur af vösku fólki í fjallahjólaferð, margir urðu varir við Etnu, eldfjallið virka sem á það til að ræskja sig nokkuð reglulega og senda frá sér iðandi reyk. Einhverjir spiluðu golf og svo framvegis.
Loðnuvinnslan bauð öllum hópnum til kvöldverðar á glæsilegu veitingahúsi og var mikið um dýrðir þar og ekkert til sparað eins og kom fram í máli Edda hér á undan. Og þar var líka slegið á létta strengi. Hópur ungra manna efndi til keppni í því hver skartaði ljótustu skyrtunni. Það fór þannig fram að hver og einn keypti eina skyrtu og svo skiptust þeir á gjöfum, hver og ein fyrirsæta skartaði skyrtu sem einhver annar hafði keypt. Skemmst er frá því að segja að kvöldverðagestir greiddu atkvæði samkvæmt bestu samvisku og sigurinn féll í skaut Lúðvíks Héðins Gunnarssonar, klæddur í einhvers konar klæði sem hinn rómverski Júlíus Cesar hefði verið stoltur af.
Nú láta ferðalangar líða úr sér og ylja sér við minningar og myndir af góðum dögum á hinni ítölsku Sikiley og ef að líkum lætur verður ekki langt að bíða þess að starfsmannafélag LVF hefji undirbúning að næstu ferð. Það er alltaf eitthvað til þess að hlakka til.
BÓA
Aldeilis föngulegur hópur
Það er víða fallegt handverk. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Reiðhjólahjálmar duga líka í hellaskoðun. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Glittir í skógarelda. Lj´somynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Ljótuskyrtukeppni! Sigurvegarinn er í neðri röð, lengst til vinstri. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Sól og blíða. Ljósmynd: Eðvarð Þór Grétarsson
Víða liggja leiðir. Ljósmynd: Eðvarð Þór Grétarsson
Eðvarð Þór Eðvarðsson á ferðinni. Ljósmynd: Eðvarð Þór Eðvarðsson
Við veislukvöldverðinn. Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Ljósmynd: Friðrik Mar
Sandfell með langmestan afla í september.
Sandfell með langmestan afla í september af bátum yfir 21 tonn. Sandfell landaði samtals 315 tonnum. Hafrafellið var í slipp meiri hlutann var september.
Mynd: Loðnuvinnslan.
Lokalisti skv. aflafréttum.
Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Landanir | Mest | Höfn |
1 | 1 | Sandfell SU 75 | 315.5 | 27 | 18.7 | Neskaupstaður, Vopnafjörður, Stöðvarfjörður, Fáskrúðsfjörður |
2 | 2 | Vigur SF 80 | 212.7 | 12 | 24.7 | Neskaupstaður |
3 | 5 | Særif SH 25 | 190.0 | 13 | 23.6 | Arnarstapi, Þorlákshöfn, Grindavík, Sandgerði |
4 | 3 | Einar Guðnason ÍS 303 | 185.1 | 17 | 13.2 | Suðureyri |
5 | 7 | Indriði Kristins BA 751 | 180.4 | 16 | 18.0 | Bolungarvík, Tálknafjörður |
6 | 6 | Kristján HF 100 | 170.0 | 15 | 17.2 | Bolungarvík |
7 | 9 | Auður Vésteins SU 88 | 167.4 | 17 | 12.6 | Neskaupstaður, Vopnafjörður, Stöðvarfjörður |
8 | 11 | Gísli Súrsson GK 8 | 161.7 | 15 | 18.2 | Neskaupstaður, Vopnafjörður |
9 | 8 | Fríða Dagmar ÍS 103 | 152.4 | 17 | 11.1 | Bolungarvík |
10 | 4 | Háey I ÞH 295 | 145.3 | 11 | 19.0 | Húsavík, Raufarhöfn |
11 | 12 | Tryggvi Eðvarðs SH 2 | 127.8 | 13 | 14.2 | Ólafsvík, Arnarstapi |
12 | 10 | Kristinn HU 812 | 119.3 | 17 | 9.0 | Skagaströnd, Sauðárkrókur |
13 | 13 | Stakkhamar SH 220 | 106.0 | 10 | 17.0 | Rif |
14 | 14 | Óli á Stað GK 99 | 98.7 | 14 | 10.8 | Sandgerði, Grindavík |
15 | 15 | Sævík GK 757 | 98.7 | 16 | 8.3 | Sandgerði, Skagaströnd, Grindavík |
16 | 18 | Vésteinn GK 88 | 75.5 | 7 | 15.5 | Neskaupstaður, Stöðvarfjörður |
17 | Hópsnes GK 77 | 71.1 | 12 | 9.3 | Dalvík, Siglufjörður | |
18 | 17 | Bíldsey SH 65 | 70.9 | 8 | 15.6 | Sauðárkrókur |
19 | 19 | Jónína Brynja ÍS 55 | 70.5 | 10 | 10.3 | Bolungarvík |
20 | 16 | Dúddi Gísla GK 48 | 65.4 | 11 | 7.8 | Skagaströnd |
21 | 20 | Hafrafell SU 65 | 35.9 | 4 | 12.1 | Stöðvarfjörður, Eskifjörður |
22 | Öðlingur SU 19 | 10.2 | 1 | 10.2 | Djúpivogur |
Þingmannanefnd um Norðurskautsmál í heimsókn
Í dag, þriðjudaginn 17.október, fékk Loðnuvinnslan góða gesti þegar hópur fólks sem tengist þingmannanefnd um norðurskautsmál leit við. Voru þar á ferð nefndarmeðlimir ásamt öðrum gestum.
Á heimasíðu Alþingis er eftirfarandi útlistun á starfsemi og tilgangi nefndarinnar:
„Þingmannanefnd um norðurskautsmál er samstarfsvettvangur þingmanna aðildarríkja Norðurskautsráðsins. Fundir eru haldnir að jafnaði þrisvar á ári. Aðildarríkin eru Bandaríkin, Kanada, Norðurlönd ( Noregur, Svíþjóð, Grænland, Færeyjar, Danmörk , Ísland) og Rússland. Í nefndinni situr einn þingmaður frá hverju aðildarríki en auk þess tilnefnir Evrópuþingið einn fulltrúa. Fulltrúi Alþingis er jafnan formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál. Á fyrstu árum sínum vann þingmannanefndin ötullega að stofnun Norðurskautsráðsins.
Helstu verkefni í norðurskautssamstarfi lúta að sjálfbærri þróun, umhverfis- og náttúruvernd. Sérstök áhersla er einnig lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta norðlægra þjóðflokka sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð íbúa norðursins.“
Formaður Íslandsdeildarinnar er Líkeik Anna Sævarsdóttir þingmaður og er hún gestgjafi nefndarinnar að þessu sinni. Líneik sagði að nefndin hefði setið á fundi til kl. 15.00 í dag en þá var farið af stað til þess að sýna gestunum eitt og annað markvert á Austurlandi. Þar á meðal var heimsókn til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði þar sem tekið var á móti gestunum í Whatnes sjóhúsinu. Boðið var upp á síld og rúgbrauð auk viðeigandi drykkja.
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstýra Fjarðabyggðar heilsaði gestum og bauð þau velkomin í Fjarðabyggð, þá sagði hún lítillega frá sveitafélaginu og helstu einkennum þess. Því næst kynnti Friðrik Mar Guðmundsson framkvæmdastjóri LVF starfsemi félagsins og sýndi gestum nokkrar stuttar kvikmyndir sem gerðar hafa verið um mismunandi þætti starfseminnar.
Þá sagði Jónína Guðrún Óskarsdóttir nokkur orð um ljósmyndirnar sem prýða veggi Whatnes sjóhússins, en þar gefur að líta glæsilegar myndir af norðurljósum.
Formaður þingmannanefndarinnar um norðurskautsmál er Aaja Chemnitz þingmaður. Hún er grænlensk og situr á danska þinginu, annar tveggja fulltrúa sem Grænlendingar eiga þar. Hún sagði það afar mikilvægt fyrir lönd á norrænum slóðum að starfa saman og því væru fundir líkt og haldinn var á Austurlandi í dag þýðingarmiklir. „Það er einnig áhugavert að heimsækja fyrirtæki og stofnanir á svæðinu og kynnast starfseminni“ sagði Aaja og bætti því við að það hefði komið henni skemmtilega á óvart hversu tæknileg öll starfsemi er hjá Loðnuvinnslunni. „Móttökurnar á Austurlandi hafa verið stórkostlegar“ sagði Aaja Chemnitz þingmaður.
Það er mikilvægt að taka vel á móti gestum því með þeim ferðast orðspor gestgjafanna og glöggt mátti sjá og heyra og gestirnir sem sóttu Loðnuvinnsluna heim í dag voru sáttir og glaðir.
BÓA
Gestirnir í Whatnes sjóhúsinu. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Veitingarnar ekki af verri endanum. Rúbrauð og síld. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Friðrik Mar Guðmundsson framkvæmdastjóri Lvf í pontu. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstýra Fjarðabyggðar ávarpar gestina. Ljósmynd: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir
Ljósafell landaði 160 tonnum í vikunni.
Ljósafell kom inn í dag eftir stuttan túr með 70 tonn og landaði sl 90 tonnum. Aflinn var að mestu Þorskur og Ýsa. Ljósafellið fer svo út á þriðjudaginn 17. október eftir að áhöfnin heim eftir 10 daga ferð til Sikileyjar.
Að elda og baka utandyra
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er margt brallað. Auk hefðbundinnar kennslu í íslensku og stærðfræði og þess háttar greinum, er líka nokkuð um það að brjóta upp það sem kallað er hefðbundið og nýjar leiðir og aðferðir eru teknar upp. Má þar til dæmis nefna útikennslu. Þá fara nemendur og kennarar út undir bert loft og nýta náttúru og umhverfi til náms og kennslu.
Fyrir ofan skólann er fallegt rjóður sem nýtist í leik og starfi og í hlíðinni er líka að finna eldstæði þar sem hægt er að grilla eitthvert góðgæti eða steikja sér lummur því að í öllum athöfnum lífsins felst eitthvert nám og nám má gjarnan vera skemmtilegt líka.
Kennurunum sem hafa umsjón með útkennslunni fannst vanta einhverskonar stand til þess að hengja pott í svo að hægt væri að nota eldstæðið á fjölbreyttari máta. “Við höfðum samband við Ingimar (Óskarsson) hjá vélaverkstæði Loðnuvinnslunnar og spurðum hvort að strákarnir í smiðjunni gætu smíðað svona þrífót fyrir okkur og hann tók mjög vel í það og nokkrum dögum síðar var fóturinn bara kominn” sagði Eydís Ósk Heimisdóttir skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Ásta Kristín Guðmundsdóttir Michelsen aðstoðarskólastjóri tók í sama streng og sagði að þrífóturinn svokallaði væri alveg fullkominn.
Ingimar Óskarsson verkstjóri á vélaverkstæðinu sagði að það væri gaman að fá svona verkefni stöku sinnum. “Við fengum útlistingu á því hvernig þrífóturinn ætti að vera en svo hönnuðum við hann bara sjálfir og smíðuðum” sagði Ingimar og bætti því við að þetta hefði nú verið frekar einföld smíði fyrir vana menn.
Rúsínan í pylsuendanum er sú að vélaverkstæðið færði skólanum þrífótinn að gjöf og sagði Ingimar að það væru forréttindi að fá að taka þátt í að gleðja núverandi og framtíða nemendur skólans með gjöfinni.
Og sannarlega er gjöfin vel þegin og óhætt að segja að allir sem starfa í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar geta sagt með sanni að þrífóturinn sé gjöf sem gleður.
BÓA
Smiðjumenn við vinnu sína.
Þrífóturinn góði kominn á sinn stað.
Ljósafell kom inn í nótt með fullfermi 110 tonn.
Ljósafell kom inn í nótt með fullfermi 110 tonn, aflinn er 60 tonn Þorskur, 30 tonn Ýsa, 10 tonn Utsi og annar afli. Ljósafell fer út kl. 13 á morgun.
Sandfell í fyrsta sæti sem af er september.
Skv. aflafréttum þá er Sandfell með mestan aflan það sem af er september eða um 200 tonn.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Landanir | Mest | Höfn |
1 | 1 | Sandfell SU 75 | 200.4 | 17 | 18.7 | Stöðvarfjörður, Neskaupstaður, Vopnafjörður |
2 | 4 | Vigur SF 80 | 155.3 | 9 | 24.7 | Neskaupstaður |
3 | 2 | Einar Guðnason ÍS 303 | 144.4 | 13 | 13.2 | Suðureyri |
4 | 3 | Háey I ÞH 295 | 125.3 | 10 | 19.0 | Húsavík, Raufarhöfn |
5 | 5 | Særif SH 25 | 119.7 | 7 | 23.6 | Sandgerði, Þorlákshöfn, Grindavík |
6 | 6 | Kristján HF 100 | 116.3 | 10 | 17.2 | Bolungarvík |
7 | 8 | Fríða Dagmar ÍS 103 | 101.6 | 11 | 11.1 | Bolungarvík |
8 | 10 | Indriði Kristins BA 751 | 94.5 | 9 | 16.7 | Tálknafjörður |
9 | 7 | Auður Vésteins SU 88 | 89.1 | 10 | 11.6 | Stöðvarfjörður, Vopnafjörður, Neskaupstaður |
10 | 11 | Gísli Súrsson GK 8 | 79.6 | 9 | 12.6 | Neskaupstaður, Vopnafjörður |
11 | 9 | Kristinn HU 812 | 73.7 | 10 | 8.5 | Skagaströnd, Sauðárkrókur |
12 | 12 | Tryggvi Eðvarðs SH 2 | 69.2 | 7 | 14.2 | Ólafsvík |
13 | 16 | Stakkhamar SH 220 | 61.3 | 5 | 17.0 | Rif |
14 | 14 | Sævík GK 757 | 54.9 | 9 | 7.1 | Grindavík, Skagaströnd |
15 | 19 | Óli á Stað GK 99 | 54.9 | 7 | 10.8 | Sandgerði |
16 | 15 | Dúddi Gísla GK 48 | 51.4 | 9 | 6.8 | Skagaströnd |
17 | 18 | Vésteinn GK 88 | 49.3 | 5 | 11.2 | Stöðvarfjörður |
18 | Bíldsey SH 65 | 39.4 | 3 | 15.6 | Sauðárkrókur | |
19 | Hafrafell SU 65 | 35.9 | 4 | 12.1 | Stöðvarfjörður, Eskifjörður | |
20 | 21 | Jónína Brynja ÍS 55 | 21.8 | 3 | 10.3 | Bolungarvík |
Afmælishóf
Það var mikið um dýrðir í Búðaþorpi við Fáskrúðsfjörð föstudaginn 15.september s.l. En þá voru hátíðarhöld vegna 90 ára afmælis Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og 50 ára afmælis Ljósafells SU 70. Víða mátti sjá fána LVF og Kaupfélagsins og jafnvel einn og einn þjóðfána sem dreginn hafði verið að húni. Kaupfélagið bauð öllu sínu félagsfólki og starfsfólki til veislu. Þá voru einnig viðstaddir veisluna aðrir gestir sem hafa komið að félaginu eða starfsemi þess með einum eða öðrum hætti, auk þess sem allnokkrir ráðamenn sveitafélagsins og landsins voru meðal gesta.
Hátíðin var haldin í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði sem breytt var í glæsilegan veislusal. Falleg dúkuð borð, hvítáklæddir stólar og huggulegur borðbúnaður. Greinilegt var að ekkert hafði verið til sparað til að gera hátíðarhöldin hin glæsilegustu fyrir þá 350 gesti sem mættu til veislunnar í sínu fínasta pússi.
Boðið var upp á verulega gómsæta þriggja rétta máltíð sem var borin á borð fyrir hvern og einn og guðaveigar af ýmsu tagi stóðu gestum einnig til boða. Gekk þjónustan afar vel og dökkklædda fólkið sem leið á milli borða með veitingar sýndu mikla fagmennsku í störfum sínum þrátt fyrir að vera svokallað áhugafólk í faginu. En það var Blakdeild Leiknis sem sá um framreiðsluna. Það er líka í anda Kaupfélagsins að bjóða til veislu og geta um leið styrkt íþróttastarfsemi í þorpinu.
Veislustjóri var Eyþór Ingi Gunnlaugsson og fór hann á kostum með gamanmálum, eftirhermun og söng. Það leiðist engum í félagi við Eyþór Inga. Hann er afslappaður og hispurslaus og kann þá kúnst að gera góðlátlegt grín að sjálfum sér.
Undir borðum var að vonum nokkur ávörp. Það er merkilegt að halda upp á 90 ára afmæli fyrirtækis/félags og 50 ára gömul skip í fullum rekstri er líka merkilegt og þegar litið er til baka er margs að minnast. Friðrik Mar Guðmundsson kaupfélagsstjóri og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar flutti ávarp, Steinn Jónasson stjórnarformaður Kaupfélagsins tók til máls og það gerði líka Elvar Óskarsson stjórnarformaður LVF og notaði hann tækifærið í sínu máli til þess að þakka Friðriki Mar fyrir hans góðu störf á þágu KFFB og LVF, en hann er að láta að störfum í haust. Þá steig Guðmundur Bergkvist Jónsson á svið og sagði frá gerð kvikmyndar sem hann gerði um Ljósafellið. Síðasta ávarp kvöldsins flutti Gísli Jónatansson fyrrverandi kaupfélags- og framkvæmdastjóri þar sem hann rifjaði upp í grófum dráttum aðdragandann að því að fest voru kaup á Ljósafellinu fyrir sléttum 50 árum síðan.
Að borðhaldi loknu tók Eyþór Ingi að sér hlutverk hljómsveitastjóra og fékk til liðs við sig úrvals hljóðfæraleikara sem léku undir dansi fram eftir nóttu.
En einn af hápunktum kvöldsins var frumsýning á kvikmyndinni sem gerð hefur verið um Ljósafellið. Um þá kvikmyndagerð sá Guðmundur Bergkvist Jónsson og vakti þessi mynd tilfinningar í brjóstum margra viðstaddra. Ekki aðeins mátti sjá þar bregða fyrir allnokkrum einstaklingum sem eru látnir en myndin sýndi þá fulla af lífi og jafnvel æsku, heldur líka er saga þessa skips svo samofin lífi fólks hér við Fáskrúðsfjörð að nánast hvert heimili hefur við það einhverja tengingu.
Guðmundur Bergkvist var mjög sáttur við viðtökurnar sem myndin fékk og sagði hann að hann væri afar þakklátur og stoltur af að hafa fengið þetta verkefni. „Það er mikill heiður að hafa fengið tækifæri til þess að skrásetja (í kvikmyndaformi) þessa merkilegu sögu. Ekki aðeins sögu þessa einstaka skips heldur líka þennan part af íslenskri atvinnusögu“ sagði Bergkvist. Hann bætti því líka við að það hefði verið svo mikilvægt að fá svigrúm og tíma til þess að grafa upp myndir og myndskeið, en slík vinna er tímafrek. Það eru mörg myndaalbúmin sem hann hefur flett og margir kaffibollar með. En niðurstaðan var sú að hann fann heilmikið efni sem engin vissi að væri til og birtist áhorfendum í þessari glæsilegu kvikmynd. „Og veislan var hin glæsilegasta“ sagði kvikmyndatökumaðurinn að lokum.
Nafn Bolla Magnússonar skipatæknifræðings er nátengt Ljósafellinu. Segja má að hann hafi verið með í ráðum varðandi skipið frá fyrstu tíð. Bolli var einn af afmælisgestunum og sagði hann að þetta hefði verið frábær veisla. „Þetta var mjög skemmtileg veisla, frábær matur og veislustjórinn skemmtilegur“ sagði Bolli og bætti því að konunni hans, sem ekki talar íslensku, hefði líka þótt afar gaman. „Ég er mjög þakklátur fyrir þann höfðingsskap að bjóða mér til veislunnar“ sagði Bolli. Hann bætti því við í gamansömum tón að það hefði verið erfitt að spjalla við gamla kunningja eftir að hljómsveitin fór að spila því það hefði verið nokkur hávaði.
Ólafur Helgi Gunnarsson sat í nefndinni sem sá um undirbúning og framkvæmd umræddra hátíðarhalda og hann var líka áhafnarmeðlimur á Ljósafellinu í fjóra áratugi. „Ég er mjög sáttur við kvöldið“ sagði Ólafur, „salurinn var hinn glæsilegasti, maturinn góður og stemmningin líka“. Hann sagði líka að myndin um Ljósafellið hefði verið stórkostleg. „Þessi mynd er frábær heimild“. Ólafur Helgi sagði að það hefði verið svolítill hávaði eftir að hljómsveitin fór að spila, „en svona er þetta bara“ sagði hann sáttur.
Ætli kynslóðabilið sé ekki að minna á sig hjá þeim herramönnum Bolla og Ólafi, ungu mönnunum með hljóðfærin fannst þetta passlegur hávaði.
Steinn Jónasson er stjórnarformaður Kaupfélagsins og var hann ánægður með kvöldið. „Þetta var frábært kvöld“ sagði Steinn „og gaman að geta boðið fólki í veislu til að fagna þessum merkilegu tímamótum“. Steinn sagði líka að það hefði verið virkilega ánægjuleg hversu margir skráðu sig á samkomuna og sýndu með því áhuga á að fagna saman. „Félagsfólk og starfsfólk átti þetta virkilega skilið“ sagði stjórnarformaðurinn.
Friðrik Mar gekk sæll frá þessu veisluborði líkt og aðrir gestir. „Mér fannst þetta sérstaklega vel heppnað kvöld“ sagði hann, „ Bautinn og HS kerfi unnu sitt verk mjög vel“ bætti hann við. En þessi fyrirtæki sáu um veitingar, veislusalinn og hljóð- og ljóskerfi. Friðrik hafði orð á því að allir sem komu að þessu kvöldi ættu þakkir skyldar. Hann sagði myndina um Ljósafellið mikið listaverk og það hefði verið sérlega ánægjulegt að fá alla þessa góðu gesti. „Fyrir utan auðfúsu gestina, sem voru Fáskrúðsfirðingar allir, þá komu rúmlega 50 gestir utan byggðarlagsins sem voru þingmenn, bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og fulltrúar banka og fyrirtækja sem við skiptum við“ sagði Friðrik Mar. Þegar Friðrik Mar var inntur eftir því hvaða tilfinningar bærust í brjósti þegar allt bendir til þess að þessi mikla veisla hafi að öllum líkindum verið sú síðasta sem hann tekur þátt í sem Kaupfélags- og framkvæmdastjóri sagði hann að hann kveddi fyrirtækin með trega en hann og konan hans, Alda Oddsdóttir, væru afskaplega þakklát fyrir tímann hér á Fáskrúðsfirði.
Að eldast þýðir ekki að hætta að dreyma um framtíðina segir einhversstaðar skrifað og á það sannarlega vel við þegar talað er um Kaupfélagið. 90 ára gamalt félag sem enn stendur styrkum fótum og má ef til vill líkja við veigar sem þykja betri og verðmætari eftir því sem aldurinn færist yfir. Því er ljúft að láta sig dreyma um hátíð sem verður hugsanlega boðið til eftir tíu ár, því þá verða tugirnir orðnir tíu.
BÓA
Prúðbúnir afmælisgestir. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Friðrik Mar Guðmundsson í ræðustól. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Elvar Óskarsson stjórnarformaður Loðnuvinnslunnar þakkar Friðriki Mar fyrir hans störf. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Glaðbeittu bræðurnir Daníel Ármannsson og Elís Ármannsson. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Guðmundur Bergkvist Jónsson kvikmyndagerðamaður. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Frá vinstri: Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Sigurður Ásgeirsson, Eiríkur Ólafsson, Guðrún Magnúsdóttir og Guðrún Níelsdóttir sem hlær svo dátt. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Frá vinstri: Magnús Stefánsson, Stefán Magnússon, Helga Valbjörnsdóttir, Dagný Hrund Örnólfsdóttir og Hjálmar Sigurjónsson. Frúin sem gengur hjá er Lára Hjartardóttir. Ljósmynd: Stefán Jónsson.
Séð yfir hluta salarinns í upphafi samkomunnar. Ljósmynd: Stefán Jónsson.
Steinn Jónasson stjórnarformaður Kaupfélagsins. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Gísli Jónatansson. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Hafþór Eide Hafþórsson flytur kveðju frá Lilju Alfreðsdóttur ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Eyþór Ingi veislustjóri. Ljósmynd: Stefán Jónsson
Sandfell og Hafrafell með 556 tonn í ágúst.
Frábær veiði hjá bátunum í ágúst. Sandfell með 283 tonn og Hafrafell með 273 tonn og voru í 2 og 3 sæti yfir landið.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Mynd: Þorgeir Baldursson.