Tróndur í Götu er á landleið til Fáskrúðsfjarðar með tæp 2.000 tonn.
Tróndur í Götu verður í fyrramálið með tæp 2.000 tonn af Kolmunna. Aflinn er fengin um 80 mílur suður af Suðurey í Færeyjum. Bræla er á kolmunnamiðunum eins og er. Þegar búið er að landa úr Tróndi höfum LVF tekið á móti 11.600 tonnum af Kolmunna í janúar.
Finnur Fríði landar í kvöld
Finnur Fríði verður í kvöld með 2.300 tonn af kolmunna. Skipið landaði síðast hér fyrir viku. Samtals hefur Loðnuvinnslan tekið á móti 9.400 tonn með þessum farmi. Kolmunninn byrjar með látum þetta árið.
Mynd: tekin 11. mars 2022, þegar Finnur Fríði landaði 1.000 tonnum af Loðnu til hrognatoku.
Ljósafell kom inn í dag með 110 tonn.
Ljósafell kom inn í dag með 110 tonn af fiski. Aflinn er 50 tonn Utsi, 25 tonn Ýsa, 25 tonn Karfi, 3 tonn Þorskur og annar afli. Ljósafell fer aftur út á morgun.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Ango áður Hoffell kemur seinnipartinn á morgun með 1500 tonn af Kolmunna.
Ango áður Hoffell kemur seinnipartinn á morgun með 1500 tonn af kolmunna sem veiddur er suður-austur af Færeyjum, Um 350 mílur eru af miðunum og siglingin tekur um 32 tíma.
Ánægjulegt er að fá þetta happaskip heimsókn til okkar á morgun.
Metár hjá Sandfelli og Hafrafell með tæp 5.000 tonn.
Ótrúlegur árangur hjá Sandfelli og Hafrafelli árið 2022 samtals 4.911 tonn, Sandfell með 2.617 tonn og Hafrafell með 2.294 tonn.
Sjá lista frá Aflafréttum.
Sæti | sknr | Nafn | Afli | Landanir | Meðalafli | Veiðarfæri |
25 | 2737 | Ebbi AK 37 | 301.10 | 53 | 5,6 | Sæbjúga, Net, Lína |
24 | 2959 | Öðlingur SU 19 | 460.60 | 64 | 7.20 | lína |
23 | 2999 | Hulda GK 17 | 661.80 | 94 | 7,1 | lína |
22 | 2822 | Særif SH 25 | 684.40 | 57 | 12.10 | lína |
21 | 3007 | Indriði Kristins BA 751 | 763.30 | 49 | 15,5 | lína |
20 | 2704 | Bíldsey SH 65 | 881.10 | 74 | 11.90 | lína |
19 | 2947 | Særif SH 25 | 920.70 | 69 | 13,3 | lína |
18 | 2714 | Sævík GK 757 | 923.20 | 122 | 7.60 | lína |
17 | 2947 | Indriði Kristins BA 751 | 982.20 | 72 | 13.60 | lína |
16 | 2902 | Stakkhamar SH 220 | 1093.20 | 113 | 9.60 | lína |
15 | 2908 | Vésteinn GK 88 | 1187.10 | 106 | 11,1 | lína |
14 | 2842 | Óli á Stað GK 99 | 1278.10 | 174 | 7,3 | lína |
13 | 2911 | Gullhólmi SH 201 | 1413.30 | 110 | 12,8 | lína |
12 | 2995 | Háey I ÞH 295 | 1568.60 | 127 | 12,3 | lína |
11 | 2880 | Vigur SF 80 | 1589.80 | 125 | 12,7 | lína |
10 | 2860 | Kristinn HU 812 | 1716.60 | 167 | 10,2 | lína |
9 | 2878 | Gísli Súrsson GK 8 | 1720.30 | 170 | 10,1 | lína |
8 | 2888 | Auður Vésteins SU 88 | 1745.80 | 162 | 10,8 | lína |
7 | 2868 | Jónína Brynja ÍS 55 | 1779.10 | 216 | 8,2 | lína |
6 | 2817 | Fríða Dagmar ÍS 103 | 1808.30 | 215 | 8,4 | lína |
5 | 2997 | Einar Guðnason ÍS 303 | 1872.90 | 158 | 11,8 | lína |
4 | 2400 | Tryggvi Eðvarðs SH 2 | 1954.50 | 131 | 14.90 | lína |
3 | 2961 | Kristján HF 100 | 2066.90 | 151 | 13.60 | lína |
2 | 2912 | Hafrafell SU 65 | 2293.60 | 197 | 11,6 | lína |
1 | 2841 | Sandfell SU 75 | 2617.10 | 203 | 12,8 | Lína |
Finnur Fríði í firðinum fagra.
Færeyska uppsjávarskipið Finnur Fríði kom með 2.300 tonn af Kolmunna í gær, en rúmur sólarhringur var af miðunum sunnan við Færeyjar til Fáskrúðsfjarðar. Árið byrjar vel í Kolmunna og samtals hafa þá komið 5.600 tonn af Kolmunna það sem af er ári til Loðnuvinnslunnar.
Mynd: Loðnuvinnslan.
Hoffell á landleið með 1250 tonn af Síld.
Hoffell er á landleið með 1.250 tonn af Síld sem fer í söltun. Síldin er fengin vestur af Reykjanesi eins og fyrir áramót. Hoffell verður snemma á föstudagsmorgun á Fáskrúðsfirði. Að lokinni löndun fer skipið til Kolmunnaveiða suður af Færeyjum.
Mynd: Valgeir Mar Friðriksson.
Ljósafell kom inn á sunnudagskvöld með 110 tonn.
Ljósafell kom inn á sunnudagskvöld með 110 tonn, aflinn var 40 tonn Ufsi, 33 tonn Þorskur , 17 tonn Ýsa, 17 tonn Karfi og annar afli. Ljósafell fer út kl. 13 í dag.
Christian í Grjótinum kom með 3.000 tonn.
Christian í Grjótinum var að koma til okkar núna kl. 10 með rúm 3.000 tonn af Kolmunna.
Aflinn fékks suður að Færeyjum og var sólarhringssigling til okkar.
Christian er nýjasta skip færeyska flotans og er hið glæsilegasta.
Hoffell tæknivæðist frekar
Tækni fleygir fram. Öll mannanna verk eru í sífelldri þróun og nýjar og bættar útgáfur af því sem fyrir var og er, koma fram, auk þess sem ný sköpun verður til. Í sjávarútvegi hefur mikil þróun á sér stað, allt frá skipum og bátum til lokavinnslu hráefnisins og þurfa fyrirtæki í þessum geira ávallt að vera á tánum, fylgjast vel nýjungum og taka þátt í ferlinu og er Loðnuvinnslan þar engin undantekning.
Um jól og áramót hefur Hoffell Su 80 verið í slipp á Akureyri. Það þarf að ditta að einu og öðru eins og gengur á skipi sem mikið er notað og þá er tilvalið að nota tíma þegar áhöfnin tekur sér frí til þess að njóta hátíðarinnar með sínu fólki. Auk almenns viðhalds á skipinu er verið að taka fyrsta skrefið í að koma fyrir enn einni tækninýjunginni. Um er að ræða svo kallaða MLD toghlera (Trawl steering system) frá dönskum framleiðanda. Þetta eru stýranlegir toghlerar fyrir flottroll sem stjórna má úr brúnni með tölvu. Virka þessir toghlerar með þeim hætti að hægt er að stilla opnunina á trollinu í sjónum með aðgerð í tölvu. Í hlerunum eru lokur sem minna á flapsa á flugvélavæng sem hægt er að hreyfa og þannig stilla hversu mikið eða lítið opið er. Skrefið sem stigið er í slippnum að þessu sinni er að koma fyrir botn stykki undir skipinu sem gegnir hlutverki sendis og móttakara. Frá þessu stykkir þarf svo að koma stjórnköplum í brúnna og hleðsluköplum aftur í skut því allt gengur þetta fyrir rafmagni. Þegar þetta verður allt klárt verður hægt að koma toghlerunum sjálfum fyrir og verður það væntanlega gert strax á nýju ári.
Tæknifólk segir að stýranlegir toghlerar séu framtíðin í flottrollsveiðum, þeir minnki slit á skipum og veiðafærum auk þess sem möguleiki skapast til þess að auka afköst og spara eldsneyti á sama tíma. Og það er árangur sem allir ættu að vera sáttir við.
BÓA
Jólakveðja.
Ljósafell kom inn í hádeginu með 90 tonn.
Ljósafell kom inn í hádeginu með tæp 90 tonn af fiski. Aflinn er 60 tonn Þorskur, 20 tonn Ýsa, 7 tonn Ufsi og annar afli.
Skipið fer út aftur á miðvikudaginn, eftir að brælan gengur niður.