Hoffell
Hoffell kom inn um kl 17:00 í gær, sunnudag með um 560 tonn af makríl og síld. Skipið fer aftur til sömu veiða að löndun lokinni.
Hoffellin
Hoffell SU 80 kom til löndunar í morgun, 21 ágúst með um 375 tonn af makríl og síld. Skipið landaði einnig um 300 tonnum þann 19 ágúst. Sama skipshöfn tók einnig túr á Hoffelli SU 802, sem landaði 210 tonnum þann 17 ágúst. Á myndinni má sjá þann gamla víkja frá lönunarbryggjunni þegar sá nýji lagðist að þann 19. ( Ljósmynd: Hallgrímur Ingi )
Ljósafell
Ljósafell hefur verið að veiðum fyrir vestan land og landaði í gærkveldi 20 ágúst 52 tonnum sem fóru á fiskmarkað. Skipið landaði einnig í Grundarfirði 17 ágúst um 100 tonnum.
Ljósafell
Ljósafell kom inn á Grundarfjörð í gær eftir tveggja daga veiðiferð með 55 tonn af karfa, skipið fór út strax eftir löndun.
Hoffell
Hoffell kom inn í gær með 600 tonn af makríl eftir einn dag á veiðum.
Hoffell
Hoffell er að landa 435 tonnum af makríl. Skipið fer strax aftur á sömu veiðar að löndun lokinni.
Hoffell
Hoffell landaði makríl 7. ágúst, 266 tonnum og aftur 10. ágúst, 470 tonnum. Skipið fór aftur til sömu veiða að löndun lokinni.
Ljósafell
Ljósafell landaði á Grundarfirði á sunnudag. Uppistaða aflans var karfi. Skipið heldur aftur til veiða frá Grundarfirði á morgunn, þriðjudag 11. ágúst kl 12:00
Hoffell
Hoffell er að landa fyrsta makríl sumarsins. Aflinn er um 465 tonn.
Ljósafell
Ljósafell er að landa á Ísafirði. Skipið er með fullfermi og uppistaðan ufsi. Skipið heldur aftur til veiða að löndun lokinni.
Ljósafell
Ljósafell er að landa á Ísafirði í dag. Aflinn er um 50 tonn. Skipið fer aftur á veiðar að löndun lokinni.
Ljósafell
Ljósafell er að landa um 42 tonnum af karfa og ufsa. Skipið heldur aftur til veiða á Sunnudag , 26 júlí kl 13:00