06.06.2019
Sandfell Su 75 var aflahæsti línubáturinn í maí mánuði með 324,3 tonn. Þetta er líka persónulegt met þeirra Sandfellsmanna en þetta er mesti afli sem þeir hafa fengið á einum mánuði. Fyrra met var 274 tonn. Örn Rafnsson skipstjóri á Sandfelli var að vonum sáttur...
29.05.2019
Í tilefni Sjómannadagsins verður skipum Loðnuvinnslunnar siglt frá Frystihúsbryggjunni á laugardaginn 1. júní, kl 11:00. Almenningi er boðið að sigla með um fjörðinn. Pylsur og gos á bryggjunni í boði útgerðar !!! Loðnuvinnslan hf og Hjálmar ehf óska sjómönnum og...
28.05.2019
Ljósafell landaði í gær rúmlega 100 tonnum. Uppistaða aflans var þorskur, karfi og ufsi. Skipið hélt aftur til veiða um miðnættið í gærkvöldi að löndun lokinni.
27.05.2019
Þegar umsvif aukast þarf oft að breyta og bæta til að mæta þeim. Frystihús Loðnuvinnslunnar hefur tekið miklum breytingum s.l ár hvað varðar tæki og búnað. Og enn er verið að bæta. Á dögunum festi LVF kaup á flæðilínu með 6 + 8 stæðum, þ.e. sitt hvoru megin við...
26.05.2019
Hoffell er komið til löndunar með fullfermi af kolmunna sem fékkst í Færeysku lögsögunni. Nokkur bið verður í næsta úthald, og verður farið að sinna ýmsu viðhaldi á næstunni.
21.05.2019
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar h/f var haldinn 17. maí sl. Hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta var 700 millj. sem er 135% hærra en 2017. Hreint veltufé frá rekstri var 1.523 milllj. sem er 88% meira en 2017. Tekjur LVF af frádegnum eigin afla voru 9.099...