Hoffell

Hoffell er á landleið með um 500 tonn af síld. Síldin fékkst í Breiðafirði í einu kasti, rétt eins og í síðasta túr. Þetta er síðasti skammturinn á þessari vertíð.

Hoffell

Hoffell er nú að landa um 500 tonnum af síld til söltunar. Skipið heldur aftur til sömu veiða á föstudag 2. nóvember kl 16:00

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa. Aflinn er um 63 tonn og uppistaðan þorskur. Skipið heldur aftur til veiða á miðvikudag 31. október kl 13:00

Hoffell

Nú er verið að landa um 500 tonnum af síld úr Hoffelli. Það er tekið rólega upp úr skipinu og skammtað í takt við afköst síldarverkunar. Skipið heldur aftur til veiða á föstudag 26. október kl. 18.00.

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa og er aflinn um 70 tonn. Uppistaðan er þorskur og ýsa. Skipið heldur aftur til veiða á miðvikudag 24. október kl 13:00

Hoffell

Hoffell er nú að landa um 480 tonnum af síld til söltunar. Skipið heldur aftur til veiða á föstudag 19. október kl 18:00