Fréttir
Hoffell er á landleið með 900 tonn.
Hoffell er á landleið með 900 tonn og verður aðra nótt. Rólegt var í byrjun túrsins og síðan var veiðin góð. 800 tonn af aflanum fékkst síðustu tvo dagana. Hoffell fer út að lokinni löndun.
Ljósafell með 104 tonn
Ljósafell kom inn á mánudaginn og heildaraflinn var samtals 104 tonn, Þorskur um 20 tonn, Ýsa um 12 tonn, Ufsi um 37 tonn , 33 tonn Karfi og annar afli. Skipið fór strax út aftur eftir löndun.
Hoffell með 230 tonn af Makríl
Hoffell kom inn í nótt með 230 tonn af makríl af Íslandsmiðum um 100 mílur austur af Fáskrúðsfirði. Samkvæmt aflafréttum þá er Hofell ennþá í öðru sæti uppsjávarskipa. Mjög róleg veiði var á miðunum. Hoffell fór strax út eftir löndun og stefnir á síldarsmuguna....
Ljósafell með 60 tonn eftir aðeins 1 1/2 sólarhring.
Ljósafell kom inn kl. 10 í dag með 60 tonn eftir aðeins 1 ½ sólarhring á miðunum. Aflinn er 30 tonn Þorskur, 20 tonn Ufsi, 7 tonn Ýsa og aðrar tegundir. Ljósafell fer út að lokinni löndun.
Ljósafell með 60 tonn eftir aðeins 1 1/2 sólarhring.
Ljósafell kom inn kl. 10 í dag með 60 tonn eftir aðeins 1 ½ sólarhring á miðunum. Aflinn er 30 tonn Þorskur, 20 tonn Ufsi, 7 tonn Ýsa og aðrar tegundir. Ljósafell fer strax út eftir löndun.
Ljósafell með 110 tonn.
Ljósafell kom inn í morgun með rúmlega 110 tonn eftir stuttan túr, en skipið fór út eftir hádegi á fimmtudaginn. Aflinn er 42 tonn Ufsi, 23 tonn Karfi, 20 tonn Þorskur, 18 tonn Ýsa og annar afli. Skipið heldur aftur til veiða kl. 13 á morgun.
Sendu okkur línu
Finnurðu ekki uppýsingarnar sem þú ert að leita að?
Ekki hika við að hafa samband við okkur.
Hvar eru skipin?
Skoðaðu hvar skipin okkar eru stödd.
Loðnuvinnslan hf
Skólavegur 59
750 Fáskrúðsfjörður
kt. 581201-2650
