Til hamingju með daginn sjómenn

Til hamingju með daginn sjómenn

Loðnuvinnslan hf og tengd félög senda sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilegar hamingjuóskir með sjómannadaginn með þökkum fyrir dugmikla sjósókn. Þröng á þingi við frystihúsbryggjuna

Hoffell SU

Hoffell er á landleið með 1.600 tonn og verður um kl. 18 í kvöld á Fáskrúðsfirði.  Hoffell hefur landað á árinu 17.500 tonn af kolmunna og mun vera aflahæst kolmunnaskipa. Eftir löndun verður skipið gert tilbúið á makrílveiðar.

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn s.l. laugardag með um100 tonna afla. 65 tonn ufsi, 20 tonn þorskur 5 tonn karfi, 5 tonn ýsa og annar afli. Ljósafell fór út aftur í gærkvöldi.

Hoffell SU

Hoffell er á landleið með 1.600 tonn af kolmunna sem veiddur er austan við Færeyjar.  Hoffell verður á Fáskrúðsfirði um kl. 13 í dag. Skipið hefur nú fengið um 16.000 tonn af kolmunna á árinu.

Ljósafell SU

Ljósafell kom s.l. sunnudag með 110 tonn af fiski.  Aflinn var 50 tonn ufsi, 30 tonn þorskur, 20 tonn ýsa og annar afli.

Hoffell SU

Hoffell er á landleið af kolmunnamiðunum með rúm 1500 tonn. Heldur er að róast veiðin sem gerist oft á þessum tíma. Skipið fer út að lokinni löndun.