Ljosafell

Ljósafell landaði í dag um 78 tonnum, mest þorski. Skipið fer aftur til veiða á fimmtudag kl 18:00

Ljósafell

Ljósafell kom inn í gær með tæp 70 tonn, mest þorskur.

Hoffell

Hoffell kom til löndunar í morgunn með um 600 tonn af makríl. Skipið fer aftur til sömu veiða að löndun lokinni.

Ljósafell

Ljósafell landaði í morgunn á fiskamarkaðinum á Dalvík. Aflinn var um 73 tonn. Skipið fór aftur til veiða að löndun lokinni.

Ljósafell

Ljósafell hefur hafið veiðar eftir slippinn á Akureyri. Skipið brosti sínu blíðasta þegar það lagði af stað frá Dalvík áleiðis til veiða aðfaranótt miðvikudags.

Hoffell með 700 tonn

Hoffell kemur í dag kl. 15.oo með 700 tonn. Makríll er um 640 tonn og 60 tonn af síld. Skipið fer aftur út eftir löndun.

Tæpar 300 mílur eru á miðin.

Ljósafell í slipp

Nú er verið að mála Ljósafellið á Akureyri. Skipið fer á flot í dag, fimmtudag 10. september. Þá eru eftir uþb. fjórir dagar í vinnu við að mála yfirbyggingu skipsins.

Hoffell

Hoffell kom með 140 tonn af síld og makríl þann 7/9 sl. og er núna á landleið með 630 tonn af makríl sem fékkst utan landhelgi.

Hoffell

Hoffell kom inn i morgunn með um 640 tonn af makril og sild. Skipið fer aftur til sömu veiða að löndun lokinni.

Hoffell

Hoffell er á landleið með um 450 tonn af makríl til vinnslu. Landar í fyrramálið, mánudag 31.08

Ljosafell

Ljosafell landaði fullfermi i Grundarfirði 25. agust. Skipið er nu a siglingu til Akureyrar þar sem það fer i botnhreinsun og malun auk ymiss smærra viðhalds. Vonandi tekur það ekki meira en 2 til 3 vikur, fer eftir veðri.