24.08.2015
Hoffell kom inn um kl 17:00 í gær, sunnudag með um 560 tonn af makríl og síld. Skipið fer aftur til sömu veiða að löndun lokinni.
21.08.2015
Hoffell SU 80 kom til löndunar í morgun, 21 ágúst með um 375 tonn af makríl og síld. Skipið landaði einnig um 300 tonnum þann 19 ágúst. Sama skipshöfn tók einnig túr á Hoffelli SU 802, sem landaði 210 tonnum þann 17 ágúst. Á myndinni má sjá þann gamla víkja frá...
21.08.2015
Ljósafell hefur verið að veiðum fyrir vestan land og landaði í gærkveldi 20 ágúst 52 tonnum sem fóru á fiskmarkað. Skipið landaði einnig í Grundarfirði 17 ágúst um 100 tonnum.
14.08.2015
Ljósafell kom inn á Grundarfjörð í gær eftir tveggja daga veiðiferð með 55 tonn af karfa, skipið fór út strax eftir löndun.
14.08.2015
Hoffell kom inn í gær með 600 tonn af makríl eftir einn dag á veiðum.
12.08.2015
Hoffell er að landa 435 tonnum af makríl. Skipið fer strax aftur á sömu veiðar að löndun lokinni.