Hoffell

Hoffell er að landa um 245 tonnum af makríl sem fékkst í Grænlenskri lögsögu. Skipið heldur strax aftur til veiða að löndun lokinni.

Sandfell

Sandfell er á landleið með um 10 tonn. Aflinn er að mestu grálúða (6 tonn) sem fer á markað. Í síðustu róðrum hefur aflinn verið 5-7 tonn, en bátinum hefur að mestu verið beint í ýsu, og nú grálúðu.

Ljósafell

Ljósafell er á landleið með um 60 tonn af blönduðum afla. Skipið fer aftur út að löndun lokinni.

Hoffell

Hoffell er á landleið með fyrsta makríl sumarsins. Aflinn er um 250 tonn. Brottför að löndun lokinni.

Sandfell

Sandfell landaði 6,5 tonnum á Stöðvarfirði í gær. Það væri ekki í frásögur færandi nema að túrinn skilaði bátinum yfir 1.000 tonn frá því að hann kom á Fáskrúðsfjörð í febrúar síðastliðinn. Af því tilefni var áhöfninni færð kaka og óskum við þeim Rabba og Erni og áhöfnum til hamingju með áfangann.

Ljósafell

Ljósafell er á landleið með fullfermi, rúm 100 tonn. brottför 03.07. kl 00:30.

Ljósafell

Ljósafell er að landa í dag. Aflinn er um 100 tonn og uppistaðan ufsi og karfi. Brottför kl 20:00 á mánudag 27. júní.

Hoffell SU80

Hoffellið hefur verið í slipp í Færeyjum.

Eins og sjá má er skipið glæsilegt nýmálað þegar því var rennt niður í morgun.

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa. Aflinn er um 72 tonn. Skipið heldur aftur á veiðar kl 13: á morgunn, þriðjudag.

Sandfell með 2×15 tonn

Sandfell landar á Stöðvarfirði í dag 15 tonnum og landaði í einnig í gær 15 tonnum. Báturinn er búinn að landa í maí 244 tonnum af fiski.

Ljósafell

Ljósafell er komið inn með 102 tonn af blönduðum afla. Skipið fer aftur á veiðar á mánudag kl 16:00