21.03.2016
Hoffell landaði í nótt 540 tonnum af kolmunna.
20.03.2016
Sandfell landaði á Djúpavogi í gær, laugard, 19 mars. Aflinn var 9,5 tonn og í dag, sunnudag er báturinn að landa 8,3 tonnum, sömuleiðis á Djúpavogi. Uppistaða aflans er þorskur sem kemur til vinnslu í frystihúsi LVF.
19.03.2016
Ljósafell hefur nú að lokið við verkefni sitt fyrir Hafrannsóknarstofnun og landaði 47 tonnum í morgunn. Nú tekur við ýmislegt viðhald, en reiknað er með næstu löndun á Þriðjudag eftir páska.
18.03.2016
Sandfell hefur verið að róa að undanförnu. Aflinn í dag er um 7 tonn, 7 tonn í gær og 9 tonn í fyrradag. Samtals rúm 120 tonn það sem af er mars.
11.03.2016
Hoffell er á landleið með síðasta farm þessarar loðnuvertíðar, en hún hefur verið stutt, en snörp. Skipið lagði af stað til loðnuveiða þann 1. mars og er nú búið með 3600 tonna kvóta í þrem veiðiferðum.
09.03.2016
Ljósafell hefur nú lokið við 134 togstöðvar í „Togararalli Hafrannsóknarstofnunar“. Skipið er nú að landa í Reykjavík og er aflinn um 72 tonn, mest karfi. Brottför óákveðin í ljósi veðurútlits.