Hérna kemur fyrsti listinn yfir aflahæstu báta og togara fyrir árið 2021, og við skulum byrja á þeim flokki sem menn eru kannski mest spenntastir fyrir, enn það eru togararnir, og inn í þessum lista eru líka 4mílna togarnir, þeir eru litaðir bláleitir. Rétt er að taka fram að Bergur VE og Jóhanna Gísladóttir GK eru sami togarinn.
Sóley Sigurjóns GK var aflahæstur af 4 mílna togurnum enn hún ásamt Berglín GK voru líka á rækjuveiðum,
Rækja
4 togarar sem eru á þessum lista voru á rækjuveiðum og er aflinn hérna samanlagður afli rækju og fisks.
þeir sem voru á rækju voru;
Klakkur ÍS
Múlaberg SI
Berglín GK
Sóley Sigurjóns GK.
Humar
Þeir sem voru á humri, og það er þá það sama með þá að þær tölur sem sjást hérna eru humar og fiskur samtals.
þeir voru;
Jón á Hofi ÁR
Þórir SF
Skinney SF
Eins og sést á þessum lista þá voru yfirburðir Viðeyjar RE á árinu ansi miklir því togarinn var með 1375 tonnum meiri afla enn næsti togari sem var Akurey RE.
Kannanir.
Í tengslum við þennan lista voru 3 spurningar.
1. Hvor togarinn af austurlandinu verður hærri, Gullver NS eða Ljósafell SU, og þetta er frekar ótrúlegt, því að það voru 296 sem kusu og niðurstaðan var jafntefli, 148 sögðu Ljósafell SU og 148 sögðu Gullver NS .
Niðurstaðan var sú að Ljósafell SU var aflahærri af þessum tveimur enn Gullver NS var þó sætinu á eftir.
2. Spurt var hversu margir togarar myndu ná yfir 8000 tonna aflann. Þeir voru 6 í heildina sem veiddu yfir 8000 tonnin árið 2021, enn það var ekki gefin upp þessi möguleiki á 6 togurum , flestir giskuðu á 3 togarar eða 35%, síðan komu 4 togarar með 28% og 2 togarar með 20%.
3. Hvaða togari verður aflahæstur árið 2021? Hérna var frekar mjótt á milli, 32 % sögðu Viðey RE og já það var réttþar á eftir kom svo 26% sögðu að Björgúlfur EA yrði aflahæstur, 18,5% sögðu Akurey RE og 17,4 % sögðu Kaldbakur EA.
Sæti | Sknr | Nafn | Afli | Róðrar | Meðalafli |
29 | 1131 | Bjarni Sæmundsson RE | 43.5 | 5 | 8.7 |
28 | 2350 | Árni Friðriksson RE 200 | 145.6 | 6 | 24.2 |
27 | 2677 | Jóhanna Gísladóttir GK 357 | 860.7 | 13 | 66.2 |
26 | 1472 | Klakkur ÍS 90 | 1031.5 | 29 | 35.6 |
25 | 2677 | Bergur VE 44 | 1984.7 | 30 | 66.2 |
24 | 1281 | Múlaberg SI 22 | 2222.7 | 51 | 43.5 |
23 | 1905 | Berglín GK 300 | 2628.3 | 48 | 54.7 |
22 | 1645 | Jón á Hofi ÁR 42 | 3072.1 | 63 | 48.7 |
21 | 2731 | Þórir SF 77 | 3403.6 | 66 | 51.5 |
20 | 1578 | Ottó N Þorláksson VE 5 | 3434.8 | 25 | 137.3 |
19 | 2025 | Bylgja VE 75 | 3715.2 | 54 | 68.8 |
18 | 2732 | Skinney SF 20 | 4023.7 | 72 | 55.8 |
17 | 1451 | Stefnir ÍS 28 | 4368.5 | 48 | 91.1 |
16 | 2262 | Sóley Sigurjóns GK 200 | 4428.9 | 53 | 83.6 |
15 | 2919 | Sirrý ÍS 36 | 5754.1 | 62 | 92.8 |
14 | 1661 | Gullver NS 12 | 5875.9 | 59 | 99.6 |
13 | 1277 | Ljósafell SU 70 | 6108.2 | 68 | 89.8 |
12 | 2904 | Páll Pálsson ÍS 102 | 6252.9 | 55 | 113.9 |
11 | 1833 | Málmey SK 1 | 6849.6 | 46 | 148.9 |
10 | 2401 | Þórunn Sveinsdóttir VE 401 | 6864.7 | 55 | 124.8 |
9 | 2894 | Björg EA 7 | 7247.3 | 55 | 131.8 |
8 | 1937 | Björgvin EA 311 | 7482.8 | 63 | 118.8 |
7 | 2861 | Breki VE 61 | 7867.1 | 67 | 117.4 |
6 | 2893 | Drangey SK 2 | 8051.4 | 51 | 157.8 |
5 | 2891 | Kaldbakur EA 1 | 8499.1 | 61 | 139.3 |
4 | 1868 | Helga María RE 1 | 8645.4 | 55 | 157.2 |
3 | 2892 | Björgúlfur EA 312 | 8838.3 | 63 | 140.2 |
2 | 2890 | Akurey AK 10 | 8972.8 | 58 | 154.7 |
1 | 2895 | Viðey RE 50 | 10347.3 | 60 | 172.4 |