Hoffellið er á leið í land með 600 tonn af makríl. Skipið verður í heimahöfn á Fáskrúðsfirði um miðnætti, sunnudaginn 22.júlí. Er þetta fyrsti markíltúr Hoffellsins á þessu ári. Veiðin gekk afar vel og sagði Bergur Einarsson skipstjóri að markríllinn væri stór og fallegur, um 420 grömm að meðalvigt. „Við fengum þennan afla í tveimur hollum út af Kötlugrunni“ sagði Bergur og bætti því við að allt hefði gengið mjög vel og að hann væri bara glaður. Hoffellið á 9000 tonna kvóta af makríl þannig að vertíðin er rétt að hefjast og reiknar Bergur með því að fast verði sótt á miðin á næstu vikum.
Makríllinn fer allur til manneldis og verður unnin hjá Loðnuvinnslunni.
BÓA