Dagana 12. til 15.maí s.l. kom hópur af Færeyingum í heimsókn á Fáskrúðsfjörð. Var þetta hópur fólks á vegum Eysturkommuna sem er heiti sveitarfélags sem samanstendur af bæjunum Götu og Leirvík. Tilgangur komu þeirra til Fáskrúsfjarðar var að kynna sér sögu Færeyinga sem sóttu sjó frá VattarnesI, kynnast tengslum Fáskrúðsfirðinga við Frakkland auk þess sem þau vildu fræðast um mennta- og atvinnumál sem og ferðaþjónustu.
Loðnuvinnslan tók vel á móti þessum góðu gestum, Þau fengu fræðslu um starfsemi fyrirtækisins og var boðið til hádegisverðar. Það sama má segja um alla þá sem tóku á móti gestunum eins og Slysavarnadeildin Hafdís, Björgunarsveitin Geisli, fulltrúar Fjarðabyggðar sem buðu uppá málsverð auk kynningar á mennta- og ferðamálum að ógleymdum heiðurshjónunum í Þingholti sem opnuðu heimili sitt fyrir frændum okkar frá Færeyjum.
Er heim var komið gerðu gestirnir góða grein fyrir dvöl sinn hér á Fáskrúðsfirði með skemmtilegri grein sem birt var á heimasíðu Eysturkommuna og má sjá greinina í heild sinni hér: