Hagnaður af rekstri Loðnuvinnslunnar hf árið 2011 nam kr. 421 millj. eftir skatta, en árið 2010 var hagnaður félagsins kr. 531 millj.
Heildartekjur félagsins á s.l. ári voru tæpir 5 milljarðar króna, en rekstrartekjur félagsins að frádregnum eigin afla voru kr. 3,9 milljarðar og lækkuðu um 6% miðað við fyrra ár.
Hagnaður án afskrifta og fjármagnskostnaðar (ebitda) var kr. 752 millj., sem er 19,3% af tekjum, en árið 2010 var ebitda kr. 814 millj. og 19,4% af tekjum. Veltufé frá rekstri var kr. 586 millj., sem er 15% af tekjum, en var kr. 717 millj. eða 17% árið 2010. Afskriftir voru kr. 198 millj. samanborið við kr. 212 árið 2010.
Eigið fé félagsins í árslok var kr. 2.038 millj., sem er 53% af niðurstöðu efnahagsreiknings, en var kr. 1.688 millj. og 46% árið á undan. Eigið fé hækkaði um 21% á milli ára og var arðsemi eigin fjár 20,6%. Nettó skuldir félagsins voru kr. 452 millj. og lækkuðu um kr. 335 millj. frá fyrra ári.
Hlutafé LVF er kr. 700 millj. og eru hluthafar 183. Stærsti hluthafinn er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 82,87% eignarhlut, en 10 stærstu hluthafarnir eiga samtals 98% hlutafjárins.
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf var haldinn 27. apríl s.l. og samþykkti fundurinn að greiða hluthöfum 10% arð að fjárhæð 70 millj. króna.
Stjórn Loðnuvinnslunnar var öll endurkjörin, en hana skipa: Friðrik M. Guðmundsson, formaður, Lars Gunnarsson, varaformaður, Steinn B. Jónasson, ritari, Elínóra Guðjónsdóttir og Elvar Óskarsson.
Varamenn Jóhannes Sigurðsson og Björn Þorsrteinsson.
Framkvæmdastjóri er Gísli J. Jónatansson