Nú er komið að því að einu Ljósafelli verði skipt út fyrir annað.
Um kl. 20.00 í kvöld, þriðjudaginn 28. apríl 2026, munu skipin mætast í Fáskrúðsfirði.
Ljósafell hið eldra er á leið til Færeyja þar sem það mun stunda áframhaldandi
útgerð. Hjálmar Sigurjónsson fyrrverandi skipstjóri mun sigla skipinu yfir hafið ásamt
áhöfn.
Á sama tíma mun Ljósafell hið nýja koma að heimahöfn í fyrsta sinn undir stjórn
Kristjáns Gísla Gunnarssonar skipstjóra og áhafnar hans.
Skipin munu mætast í Fáskrúðsfirði, heilsast og kveðjast með því að taka einn hring
saman og halda síðan hvor sína leið. Þegar Ljósafell SU 70 kemur í heimahöfn
verður strax hafist handa við að undirbúa það til veiða og áður en það leggur upp í
sinn fyrsta túr fyrir Loðnuvinnsluna verður skip og áhöfn blessað að gömlum og
góðum sið.
Stefnt er að því að bæjarbúum og öðrum áhugasömum gestum verði boðið að skoða
skipið um sjómannadagshelgina og boðið upp á siglingu líkt og hefð er fyrir hjá
Loðnuvinnslunni. Þau áform verða kynnt þegar nær dregur.
Ljósafelli hinu eldra fylgja óskir um áframhaldandi gæfu hjá nýjum eigendum.
Ljósafelli hinu nýja er fagnað með sömu óskum um gæfu og velgengni til handa skipi
og áhöfn.
BÓA

Ljósmynd Kjartan Reynisson

Ljósafell Su 70, hið nýja skip Loðnuvinnslunnar. Ljósmynd: Kristján Gísli Gunnarsson


