Eins og mörgum er kunnugt hefur Loðnuvinnslan fest kaup á togaranum Þórunni Sveinsdóttur. Skipið verður afhent í lok marsmánaðar.
Á fundi stjórnar Loðnuvinnslunnar, sem haldinn var fimmtudaginn 19.febrúar, var það einróma ákvörðun stjórnar að nýja skipið skyldi hljóta nafnið Ljósafell og bera umdæmisnúmerið SU 70.
Með þessari ákvörðun er verið að heiðra farsæla útgerðarsögu skipsins sem leyst verður af hólmi, auk þess sem nafnið Ljósafell er mörgum Fáskrúðsfirðingum kært.
Núverandi Ljósafell mun halda nafninu á meðan á söluferli stendur en taka upp umdæmisnúmerið SU 90.
Ljósmynd: Kristján Gunnarsson



