Þann 3.maí sl. tók fiskmjölsverksmiðja Loðnuvinnslunnar á móti 3.606 tonnum sem landað var úr færeyska uppsjávarveiðiskipinu Götunes. Langstærstur hluti þess afla var kolmunni en lítilræði af makríl flaut með. Er þetta lang stærsti farmur sem hefur komið úr einu skipi við löndunarbryggju LVF.
Magnús Ásgrímsson verksmiðjustjóri fiskmjölsverksmiðjunnar sagði að verksmiðjan réði vel við slíkt magn hráefnis. „Það tók einn og hálfan sólarhring að landa þessum afla og svo tekur svona fjóra sólarhringa að vinna hráefnið“ sagði Magnús.
Sagði Magnús einnig að hráefnið væri nokkuð gott, en þar sem kolmunninn er farinn að horast verður afurðin að mestu mjöl.
Skipverjar á Götunesi fylgdust vel með vigtinni og fögnuðu hverju nýju kílói undir lok löndunar því að þetta var líka mesti afli sem skipið hefur aflað í einum túr hingað til.
Það er alltaf gaman að ná nýjum áföngum líkt og taka á móti mesta afla til vinnslu úr einu skipi. En vertíðin er ekki búin þó svo að hún sé farin að styttast í annan endann og aldrei að vita hvenær næsta met fellur. Starfsfólk fiskmjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar stendur sína vakt og vinnur sín verk hvort heldur um metafla er að ræða eða ekki, en full ástæða er til að staldra við og fagna skemmtilegum áföngum.
BÓA

Götunes á leið til hafnar á Fáskrúðsfirði, Skrúður tignarlegur í baksýn. Ljósmynd: Jónína Guðrún Óskarsdóttir