Aðalfundur Loðnuvinnslunnar h/f var haldinn 20. maí.  Hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta árið 2021 var 1.247 millj á móti 663 millj árið 2020. 

Tekjur LVF voru 12.503 millj. sem var um 5% aukning frá fyrra ári.   Tekjur að frádregnum eigin afla voru 9.322 millj. 

Veltufé frá rekstri var 1.571 millj á móti 2.025 millj. 2020.  Eigið fé félagsins í árslok 2020 var 11.552 millj  sem er 48% af niðurstöðu efnahagsreiknings. 

Stærsti hluthafinn er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 83% eignarhlut.
Samþykkt var að greiða 20% arð til hluthafa eða 140 millj.

Stjórn LVF er þannig skipuð: Elvar Óskarsson stjórnarformaður, Steinn Jónasson, Högni Páll Harðarson, Jónína Guðrún Óskarsdóttir og Elsa Sigrún Elísdóttir.
Varamenn Óskar Guðmundsson og Jóna Björg Jónsdóttir.

BÓA