Hoffell er á landleið með tæp 800 tonn af Síld og verður aðra nótt á Fáskrúðsfirði. Veiðin gekk vel eftir að brælan gekk niður í gær og fékkst aflinn á einum sólarhring.
Síldin fer öll í söltun. Tæpar 400 mílur er af miðunum til Fáskrúðsfjarðar.
Hoffell fer aftur á síld eftir löndun.