Ljósafell landaði 107 tonnum í tveimur löndunum í síðstu viku, aflinn var aðallega þorskur og karfi.
Ljósafell sigldi síðan til Færeyja sl. sunnudag og var tekið upp í slipp þar. Skipið er að fara í venjubundið viðhald, en það er tekið á tveggja ára fresti í slipp, botnhreinsað og málað.
Reiknað er með að skipið verði rúmar tvær vikur í Færeyjum.
![](https://lvf.is/wordpress/wp-content/uploads/2021/08/Ljosafell-agust-scaled.jpg)
Mynd tekið í dag af Kjartani Reynissyni.