Aðalfundur KFFB var haldinn 2. júlí. Hagnaður árið 2020 559 millj. Eigið fé KFFB var 9.565 millj. sem er 99.8% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Stærsta einstaka eign félagsins er 83% eignarhlutur í Loðnuvinnslunni hf.
Í stjórn KFFB eru: Steinn Jónasson stjórnarformaður, Elvar Óskarsson, Högni Páll Harðarson, Arnfríður Eide Hafþórsdóttir og Óskar Guðmundsson.
Varamenn :Ólafur Níels Eiríksson, Jónína Óskarsdóttir og Jóna Björg Jónsdóttir.