Þegar umsvif aukast þarf oft að breyta og bæta til að mæta þeim. Frystihús Loðnuvinnslunnar hefur tekið miklum breytingum s.l ár hvað varðar tæki og búnað. Og enn er verið að bæta. Á dögunum festi LVF kaup á flæðilínu með 6 + 8 stæðum, þ.e. sitt hvoru megin við línuna, skoðunarstöð, skotbönd og önnur færibönd til að tengja roðvél við skurðavél og síðan frá flæðilínu til marningsvélar. Búnaðurinn er allur keyptur hjá Völku í Kópavogi og verður til afhendingar þann 16.september n.k.
BÓA