Ljósafell

Ljósafell landaði í gær ( Sunnudag ) um 96 tonnum. Uppistaðan var þorskur, ufsi og karfi. Skipið heldur aftur til veiða á miðvikudag 17. apríl kl 13:00

Hoffell

Hoffell er nú að landa um 1280 tonnum af kolmunna sem fékkst syðst í Færeysku lögsögunni. Skipið heldur aftur til sömu veiða að löndun lokinni.

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa. Aflinn er um 100 tonn, og uppistaðan þorskur og ufsi. Skipið heldur aftur til veiða á miðvikudag, 10. apríl kl 13:00

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa og er aflinn um 95 tonn. Uppistaðan er þorskur. Skipið heldur aftur til veiða á morgun, miðvikudaginn 3. apríl, kl 13:00

Vorfundir 2013

Aðalfundur Innri-deildar KFFB verður haldinn í kaffistofu frystihússins mánudaginn 15. apríl 2013 kl. 20.00.



Aðalfundur Ytri-deildar KFFB verður haldinn í kaffistofu frystihússins þriðjudaginn 16. apríl 2013 kl. 20.00.



Aðalfundur Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga verður haldinn í Félagsheimilinu Skrúði föstudaginn 19. apríl 2013 kl. 17.30.



Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf verður haldinn í Félagsheimilinu Skrúði föstudaginn 19. apríl 2013 kl. 18.30.



Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga

Loðnuvinnslan hf

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa. Skipið kom inn í gær með 61 tonn af fiski og eina trillu í eftirdragi. Smábáturinn hafði bilað í fjarðarmynninu og þáði góðfúslega aðstoð við að komast til hafnar með Ljósafellinu. Skipið heldur aftur til veiða á fimmtudaginn 28. mars kl: 15:00

Ljósafell

Ljósafell er komið til löndunar. Aflinn er um 40 tonn. Brottför í næstu veiðiferð verður ákveðin síðar.

Ljósafell

Ljósafell hefur nú lokið árlegu verkefni fyrir Hafrannsóknarstofnun. „Togararallinu“ lauk í gær, 14. mars, þegar skipið landaði um 47 tonnun. Búið er að skipta um veiðarfæri og heldur skipið til hefðbundinna veiða kl 15:00 í dag.

Mjölskip

Flutningaskipið Wilson Astakos lestaði í gær 2000 tonn af loðnumjöli hjá LVF. Mjölið fer á Danmörku og Þýskaland.

Júpiter

Færeyska skipið Júpiter kom til Fáskrúðsfjarðar í dag með um 2000 tonn af loðnu. Loðnan fer til hrognatöku.

Hoffell

Hoffell er væntanlegt til löndunar í nótt með fullfermi af loðnu til hrognatöku.

Hoffell

Hoffell er komið til hafnar með um 1000 tonn af loðnu. Aflinn fer í hrognatöku. Skipið heldur aftur til sömu veiða að löndun lokinni.