Gitte Henning

Gitte Henning

Færeyska uppsjávarskipið Gitte Henning kemur í kvöld með 2.700 tonn af kolmunna til bræðslu.  Skipið er byggt 2018 og er mjög vel útbúið. Útgerðin frá Götu í Færeyjum keypti skipið frá Danmörku í fyrra. Sama útgerð er einnig eigandi af Finni Frida, Þrándi í Götu og...

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn í morgun með tæp 80 tonn eftir rúma tvo sólarhringa á veiðum. Aflinn er um 40 tonn ufsi, 20 tonn karfi, 15 tonn þorskur og annar afli.

Hafrafell og Sandfell

Það sem liðið er af maí hefur veiði bátana Sandfells og Hafrafells verið mjög góð. Hafa þeir landað samtals um 300 tonnum á fyrstu 16 dögunum. Sandfell hefur landað um 160 tonnum og Hafrafell um 140 tonnum.
Hoffell SU 802

Hoffell SU 802

Í dag eru um 3. ár síðan að „gamla“ Hoffellið sigldi sína síðustu ferð hér út Fáskrúðsfjörð með stefnuna á Gran Canaria. Í dag heitir skipið Zander 2 og er gert út frá Marokkó Meðfylgjandi myndir voru teknar nýlega af skipinu í slipp í Las...

Hoffell SU

Hoffell kom inn til löndunar í morgun með um 1.650 tonn af kolmunna. Aflinn í þessum túr fékkst suður af Færeyjum.

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn til löndunar í gær, fimmtudag með um 100 tonn. Aflaskiptingin var 35 tonn þorskur,  40 tonn ufsi, 22 tonn karfi og annar afli. Ljósafell fór út af lokinni löndun.