Ljósafell SU

Ljósafell kom inn í dag með tæplega 100 tonna afla. 45 tonn ufsi, 22 tonn karfi,  10 tonn þorskur og annar afli.

Röttingoy landar

Norska skipið Røttingøy skellti sér undir þegar Steinevik hafði lokið löndun. Skipið er með 140 tonn af loðnu til frystingar.

Östervold landar

H. Östervold kemur í kvöld með 650 tonn af góðri loðnu til frystingar.  Loðnan er komin með Japansþroska.
Þetta skip hefur oft komið með loðnu til Fáskrúðsfjarðar.

Loðnulöndun

Steinevik kemur í nótt með 450 tonn af loðnu sem er fullþroskuð fyrir Japansmarkað.

Loðnan var fengin í aðeins aðeins 3 tíma siglingu frá Fáskrúðsfirði.

Loðnulandanir

Í kvöld kemur Ingrid Majala með rúm 150 tonn af loðnu til frystingar og í nótt kemur svo Sæbjörn með 430 tonn af loðnu til frystingar.

Loðnan er fersk og falleg enda veiðin aðeins 20 til 40 mílur austur af Fáskrúðsfirði.

Unnið er á vöktum allan sólarhringinn meðan vertíðin stendur yfir.

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn í gær með tæp 100 tonn. Aflinn var um 30 tonn þorskur, 15 tonn ýsa, 35 tonn karfi, 15 tonn ufsi og svo annar afli.

Skipið fór út kl. 17.00 í dag.

Loðnufrysting hafin að nýju

Það var létt yfir mannskapnum hjá Loðnuvinnslunni hf í morgun þegar byrjað var að landa fyrstu loðnunni eftir tveggja ára kvótalaus ár. Norska uppsjávarskipið Kings Bay frá Fosnavåg er fyrsta skipið sem kemur til löndunar þetta árið og er það með 460 tonn sem fer allt í frystingu.

Hoffell SU

Hoffell er á landleið með 500 tonn af síld sem fengin er vestur af Reykjanesi.

Skipið togaði aðeins í 1 klst. og fékk þessi 500 tonn.  Mikið er af síld að sjá og torfan margar mílur. Hoffell verður aðra nótt á Fáskrúðsfirði.

Bátar

Janúar var ágætur hjá Hafrafelli og Sandfelli, en afli bátanna var samtals um 403 tonn.  Ekki var hægt að róa í 10 daga vegna brælu.

Hafrafell var með 201 tonn og Sandfell með 202 tonn.  Þorskurinn var sérlega stór, um 6-7 kg fiskur óaðgerður.

Ljósafell SU

Ljósafell kom inn í dag kl. 16,00 með 95 tonn af fiski eftir 4 daga á veiðum. Aflaskiptingin eru tæp 60 tonn þorskur, 10 tonn ýsa og 24 tonn karfi og annar afli.

Skipið fer aftur út kl. 22,00 á morgun, þriðjudag.

Ljósafell SU

Ljósafell, sem verður 48 ára gamalt í ár, var með 6.454 tonna afla óaðgert árið 2020, og var skipið í 10 sæti yfir togara skv. vefnum aflafrettir.is. Flest skipin sem eru með meiri veiði eru nýleg og hafa komið ný til landsins undanfarin 3-4 ár. Eins og áður hefur komið fram gekk mjög vel hjá Ljósafellinu á síðasta ári og er 2020 besta ár í sögu skipsins. Við óskum skipstjóra og áhöfn til hamingju með frábæran árangur.

Hoffell á landleið

Hoffell er nú á landleið með 1.650 tonn af kolmunna sem fengust syðst í Færeysku-lögsögunni. Fá skip hafa stundað þetta að undanförnu og talsvert fyrir þessum afla haft.