Aðalfundur LVF

Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf var haldinn 11. apríl s.l. Hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta árið 2013 var 541 millj. sem er svipað og 2012. Tekjur LVF að frádregnum eigin afla voru kr. 4.642 millj. Eigið fé félagsins í árslok 2013 var kr. 2.970 millj. sem er 54% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Hlutafé LVF er kr. 700 millj. og voru hluthafar í lok ársins 176. Stærsti hluthafinn er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með um 83% eignarhlut. Samþykkt var að greiða 10% arð til hluthafa eða kr. 70 millj. Á fundinum tók aðstoðarskólastjóri Eygló Aðalsteinsdóttir fyrir hönd Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar á móti 14 Ipad tölvum sem er gjöf frá Loðnuvinnslunni hf.

Stjórn LVF er þannig skipuð: Lars Gunnarsson, Elvar Óskarsson, Steinn B. Jónasson, Jónína G. Óskarsdóttir og Berglind Agnarsdóttir.

Varamenn: Björn Þorsteinsson og Elinóra K. Guðjónsdóttir.

Mynd frá afhendingu á gjöfum: Fv. Eygló Aðalsteinsdóttir aðstoðarskólastjóri GF og Friðrik Mar Guðmundsson framkv. stj. LVF.

Ljósafell

Ljósafell er nú að landa um 78 tonnum til vinnslu í frystihús. Skipið heldur aftur til veiða á miðvikudag, 16. apríl kl 24:00.

Ljósafell

Ljósafell kom til löndunar í morgun með um 90 tonn af blönduðum afla. Skipið fer aftur á veiðar að löndun lokinni, um kl 11:00

Tróndur í Götu

Tróndur í Götu kemur kl. 17,00 í dag með um 2700 tonn af kolmunna. Skipið fékk aflann við Írland í EU landhelginni. Um 42 tíma sígling er frá miðunum.

Ljósafell

Ljósafell kom inn í morgun eftir aðeins 2 1/2 sólarhring á veiðum með 100 tonn afla, þar af var 80 tonn ufsi. Ljósafell fer út annað kvöld.

Hoffell

Hoffell heldur til kolmunnaveiða í kvöld frá Færeyjum eftir að hafa verið í slippí rúma viku.

Meðfylgjandi mynd var tekin af Hoffellinu í morgun.

Norderveg

Loðnuskipið Norderveg kom til LVF sl. föstudagskvöld með 800 tonn af loðnu til hrognatöku. Fryst voru 72 tonn af hrognum og 200 tonn af karlloðnu fyrir Rússlandsmarkað.

Þetta er í sjöunda skipti á fjórum árum sem kemur skip með loðnu til hrognatöku frá útgerðinni í Bergen.

Ljósafell

Ljósafell landaði 80 tonnum af fiski í morgun, en síðast landaði skipið tæpum 40 tonnum sl. fimmtudag.

Aðalfundur LVF

Vorfundir 2014



Aðalfundur Innri og ytri deildar KFFB verður haldinn í kaffistofu frystihússins miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 20.00.


Aðalfundur Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga verður haldinn í Félagsheimilinu Skrúði föstudaginn 11. apríl 2014 kl. 17.30.




Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf verður haldinn í Félagsheimilinu Skrúði föstudaginn 11. apríl 2014 kl. 18.30.



Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.



Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga



Loðnuvinnslan h/f



Ljósafell

Ljósafell er komið inn með um 80 tonn, uppistaðan þorskur. Skipið heldur aftur til veiða á þriðjudag 25. mars kl 13:00 að öllu óbreyttu.

Ljósafell

Ljósafell landaði í morgun 78 tonnum, aðallega þorski eftir stuttan túr. Skipið hélt aftur á veiðar að löndun lokinni.

Ljósafell

Ljósafell kom inn í nótt með um 12 tonn. Þetta var seinni hluti af Torararallinu, sem nú er lokið. Skipið heldur nú til hefðbundinna veiða og er brottför á Sunnudag 16. mars kl 08:00