Sandfell landaði alls um 264 tonnum í ágúst, og var með talsvert forskot á aðra báta í sama stærðarflokki. Sjá frétt aflafrétta: http://www.aflafrettir.is/frettir/grein/batar-yfir-15-bt-i-agust-nr5/4785

Kristján HF var í öðru sæti með 199,9 tonn og Hafrafell SU sem leggur upp hjá Loðnuvinnslunni hf var í þriðja sæti með 183 tonn. Þessir þrír skáru sig nokkuð frá öðrum í sama flokki.