Hoffell er á heimleið með um 400 tonn af loðnu.  Aflann fékk Hoffellið í tveimur köstum u.þ.b 5 mílum suðvestur af Hornafirði.  Að sögn Bergs Einarssonar skipstjóra er loðnan væn og góð og fer beint til frystingar á Japansmarkað.  Hrognafylling loðnunnar er um 15% sem gerir hana að afbragðsgóðri vöru fyrir Japan.  Áætluð koma til heimahafnar á Fáskrúðsfirði er um miðnætti aðfaranótt 13.febrúar og fljótlega upp úr því hefst löndun og vinnsla.  Bergur skipstjóri var inntur eftir því hvort að túrinn hefði gengið vel? „Allt gekk mjög vel og gott að finna loðnulyktina, það fylgir lyktinni ákveðin stemmning, mætti jafnvel kalla hana peninga lykt“ svaraði skipstjórinn og hló við.

BÓA